155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

Störf þingsins.

[11:04]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Það er þráðbeint samhengi á milli öflugrar inngildingar fólks af erlendum uppruna og ekki síst barna og íslenskukunnáttu þeirra. Þetta sýnir nýleg úttekt á vegum OECD á íslenskum vinnumarkaði svart á hvítu. Það eru skýr teikn á lofti um að við höfum að einhverju leyti vanrækt og vanmetið þörf barna með erlent móðurmál að þessu leyti. Áhrifin eru farin að birtast í niðurstöðum PISA-könnunarinnar sem birtist fyrir áramót og samanburður við önnur OECD-lönd talar sínu máli. Munurinn er áþreifanlegur á milli þeirra sem tala íslensku heima og þeirra sem gera það ekki og er sá allra mesti innan OECD-svæðisins. Þetta er vandamál um land allt og þetta er afleiðing af því að það er enginn raunverulegur samstiga fókus á þessum verkefnum í íslenskum stjórnmálum. Ríkisstjórnin talar ekki einu máli í þessu verkefni og í rauninni talar hluti ríkisstjórnarinnar bara engu máli í þessu verkefni. Við verðum að fara að ræða af fullri alvöru hvort forgangsröðunin sé rétt á skólastigum landsins þó að þar sé metnaðarfullt fólk á hverju strái. Ég kalla eftir því að við ræðum breytingar af alvöru og þær verða þá að ná til landsins alls. Í þessu sambandi er ekki annað hægt en að vekja athygli á því að Reykjavíkurborg fær ekki sömu framlög og önnur sveitarfélög landsins til að rækja þessi verkefni og Reykjavíkurborg er eina sveitarfélagið á landinu þar sem þessi hópur fólks og barna af erlendum uppruna með erlend móðurmál fær 0 kr. til að sinna þessari menntun og skyldum sínum gagnvart þeim. Ríkisstjórnin hefur staðið í vegi fyrir sáttinni. Þessa deilu á að heyja fyrir dómstólum þessa lands. (Forseti hringir.) Ég kalla eftir því að stjórnvöld geri sitt besta í að halda dómstólum landsins utan við þessa umræðu.