155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

viðurkenning á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi.

232. mál
[11:07]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi til að starfa hér á landi. Markmiðið með því frumvarpi sem ég mæli fyrir er að tryggja að framkvæmt sé mat á meðalhófi með svokallaðri meðalhófsprófun áður en innleidd er ný lögverndun starfsgreinar eða gildandi lögverndun er breytt. Það er gert til að tryggja eðlilega starfsemi innri markaðar EES-svæðisins.

Með ákvörðun nr. 243/2021 var tekin upp í EES-samninginn tilskipun (ESB) 2018/958, um meðalhófsprófun áður en samþykkt er ný lögverndun starfsgreinar. Með þessu frumvarpi verða innleidd í íslenskan rétt efnisákvæði tilskipunarinnar en tilskipunin tekur til þeirra lögvernduðu starfsgreina sem falla undir gildissvið tilskipunar 2005/36/EB, um viðurkenningu á faglegri menntun og hæfi, sem var innleidd hér á landi með lögum nr. 26/2010 og því var efnisákvæðum tilskipunarinnar um meðalhófsprófun fundinn staður þar.

Helstu nýmæli frumvarpsins eru að stjórnvöld skuli framkvæma meðalhófsprófun, eins og fyrr segir, þegar ákvæðum laga eða stjórnvaldsfyrirmælum sem takmarka aðgang að lögverndaðri starfsgrein eða iðkun hennar er breytt eða ný ákvæði eru sett. Í fyrsta lagi skulu slík ákvæði rökstudd með vísan til almannahagsmuna. Í öðru lagi skulu ákvæðin vera til þess fallin að ná því markmiði sem stefnt er að og ekki ganga lengra en nauðsynlegt er til að ná því markmiði. Umfang matsins er í réttu hlutfalli við eðli og innihald og umfang ákvæðisins. Þetta verklag á að leiða til vandaðri reglusetningar um lögverndun starfa þar sem ekki er gengið lengra í að lögvernda starfsgreinar en þörf er á með tilliti til almannahagsmuna.

Framkvæmd meðalhófsprófunar er á ábyrgð hlutaðeigandi ráðherra hverju sinni. Í þeim tilfellum þar sem ráðherra setur fram nýjar eða breyttar reglur um lögverndun þarf að skrá rökstuðning fyrir því í gagnagrunn ESB yfir lögverndaðar starfsgreinar þar sem fram kemur að reglurnar hafi verið metnar í samræmi við ákvæði tilskipunarinnar, þær séu rökstuddar sem réttlætanlegar og að meðalhófs hafi verið gætt.

Í frumvarpinu er einnig mælt fyrir um heimild háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra til að setja reglugerð um meðalhófsprófun, upplýsingaskipti milli aðildarríkja, kröfur um skráningu í gagnagrunn og önnur framkvæmdaratriði tilskipunar um meðalhófsprófun.

Virðulegur forseti. Í frumvarpinu er ekki gengið lengra en lágmarksákvæði tilskipunar ESB um meðalhófsprófun kveða á um. Frumvarpið felur einungis í sér ákvæði til innleiðingar á tilskipuninni. Ekki er gert ráð fyrir að frumvarpið hafi áhrif á fjárhag ríkissjóðs og það eykur ekki reglubyrði á fyrirtæki eða einstaklinga og getur haft jákvæð áhrif á atvinnufrelsi og samkeppnishæfni Íslands. Þá er talið að frumvarpið hafi hlutlaus eða jákvæð áhrif á jafnrétti kynjanna.

Virðulegi forseti. Ég hef nú gert grein fyrir efni frumvarpsins í stórum dráttum og legg til að því verði að lokinni þessari umræðu vísað til hv. allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.