útlendingar.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Það er ánægjulegt að heyra að í fyrsta sinn á ævinni hef ég verið talin það óskýrmælt og það illa máli farin að hv. þingmaður getur bara engan veginn skilið hvað ég er að segja. Ég var mjög skýrmælt og þegar verið er að tala um að ég grauti öllu saman þá er þetta allt saman í samhengi. Ég veit ekki hvort hv. þingmaður, sem allt veit um útlendingamál, geri sér grein fyrir því að við erum líka að vísa hér í flóttamannasamning Sameinuðu þjóðanna, f-lið. Við erum líka að tala um að bakka hreinlega með útlendingalöggjöfina til þess tíma þegar þetta ákvæði var til staðar árið 2016 þegar einhverra hluta vegna einhverri þverpólitískri þingmannanefnd tókst að rústa útlendingalöggjöfinni. Og svo ætla ég líka að benda á það að þegar við erum að fá hér glæpamenn sem eru með stöðu flóttamanna og eru samfélaginu stórhættulegir — já, þá er mér næstum því sama þó að þeir séu sendir heim til sín, sérstaklega þegar þeir eru ekki að koma frá stað þar sem þeir verða hugsanlega settir á hliðina. En það að tala um hælisleitendur eins og við eigum að taka við öllum sem eru í vanda og hafa allt opið hér, eins og ég veit að hv. þingmaður vill, þá er staðan einfaldlega þessi og ég er mjög skýr með það: Ísland er uppselt gagnvart frekari umsóknum hælisleitenda og við það situr. Ég ætla að mótmæla því harðlega að ég sé óskýrmælt. Ég tel mig mjög skýrmælta og skipulagða í því sem ég er að segja. Ég grautaði engu saman. Hv. þingmaður missti af fyrri partinum af ræðu minni. Ég grautaði engu saman. Þetta var allt saman í einni mjög góðri samfellu hjá mér.