útlendingar.
Virðulegur forseti. Hv. þingmaður leggst hér ansi lágt, tilkynnir um það hverjar mínar skoðanir séu á þessum málum, að ég vilji opna landamærin og annað. Það er auðvitað einfaldasta leiðin sem hv. þingmaður hefur til þess að svara ekki þeim athugasemdum sem hafa komið fram. Ég ítreka spurningu mína til hv. þingmanns þó að mér hafi þótt hún svara henni, en það var óskýrt: Er hv. þingmaður að leggja til dauðarefsingar þegar um er að ræða flóttafólk? Í flóttamannasamningi Sameinuðu þjóðanna er talað um að flóttamaður geti misst stöðu sína hafi hann framið glæp gegn friði, stríðsglæp eða glæp gegn mannkyninu eins og skilgreint er í alþjóðlegum samningum. Í frumvarpi hv. þingmanns segir, með leyfi forseta:
„… ef skynsamlegar ástæður eru til að álíta hann hættulegan öryggi ríkisins eða hann hefur verið dæmdur, fyrir afbrot, til fangelsisvistar og er af þeim sökum hættulegur samfélaginu.“
Þetta er alls ekki í samræmi við flóttamannasamninginn. Ég ætla að ítreka spurningu mína, vísa öðru lágkúrulegu, sem hv. þingmaður hefur sagt hér í andsvari sínu, á bug og spyr hana aftur: Er hv. þingmaður að leggja til dauðarefsingar þegar um er að ræða flóttafólk?