155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[11:38]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég veit ekki hvaðan í ósköpunum hún fékk þessa hugmynd. Ég hef aldrei nefnt hugtakið dauðarefsingu á nafn, aldrei nokkurn tíma, þannig að ef við ætluðum að fara þangað, skjóta okkur aftur til fornaldar, þá verður það að koma úr ranni hv. þingmanns sjálfs. Ég hef ekki talað um dauðarefsingu og ég er á móti dauðarefsingum. Því skal haldið til haga. Ég er mjög skýrmælt. Ég nefndi ekki dauðarefsingu. Ég veit ekki hvernig á því stendur að hv. þingmaður ber hér fram eina spurningu og hún er um það hvort ég sé að mæla hér fyrir dauðarefsingum. Ef einhver hefur tekið það út úr því sem ég hef verið að segja hér þá verður hann bara að hlusta aftur. Það er mesti misskilningur. Ég er hins vegar skýr með það að allir þeir sem koma hér, hvort sem það er til þess að fremja rán, morð, ofbeldi eða skapa ógn í okkar samfélagi á okkar kostnað þegar við erum að rétta þeim hönd sem flóttamönnum til að taka utan um þá og hjálpa þeim — þá úr landi með þá skilyrðislaust. Í öðru lagi skal það sagt að flestir þeir sem koma hér og eru að sækja um hér koma frá Evrópu.