útlendingar.
Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka fyrir framlagningu þessa máls hér í þinginu. Ég styð hugsunina í þessu máli heils hugar. Það hefur legið fyrir hjá mér mjög lengi. Sú afstaða mín birtist í þessum þingsal árið 2016 þegar þáverandi lög voru sett um útlendinga og þetta ákvæði sem hér er verið að kalla inn í lögin aftur var fellt úr gildi. Það var ein af ástæðunum fyrir því að ég, einn þingmanna sem sit á þingi í dag, greiddi atkvæði gegn þeim lögum. Þá vorum við tveir þingmenn sem greiddum atkvæði gegn lögunum vegna þess að okkur þótti of langt gengið í frjálsræðisátt. Síðar hefur komið í ljós að við höfum verið í böggli með að koma til baka og setja plástra á þau lög sem voru að mínu mati, og núna þingsins, allt of frjálslynd gagnvart óheftu flæði hælisleitenda til landsins. Við erum sammála um það að við eigum að taka á móti fólki sem kemur frá stríðshrjáðum löndum, en við erum líka sammála um það að við eigum að hætta að taka á móti fólki sem kemur frá löndum sem þegar hafa veitt þeim vernd í Evrópu, sem var einn af stóru þáttunum í því hve hælisleitendum fjölgaði mikið á sínum tíma.
Ég vil líka taka undir skörulega ræðu framsögumanns, hv. þm. Ingu Sæland, um starfsemi, starfsöryggi og -umhverfi lögreglunnar. Á mánudaginn var fór ég ásamt þingmönnum Sjálfstæðisflokksins og kynntum við okkur starfsemi ríkislögreglustjóra og sérsveitarinnar. Það var afar áhugavert. Auðvitað hefur maður kynnt sér þetta áður en það er alltaf ákveðin upplifun og sérstakt að koma á þessa staði og verða enn og aftur vitni að því að við í þinginu erum ekki að skapa lögreglunni á Íslandi það svigrúm sem lögreglulið í öðrum löndum hafa til að takast á við þau vandamál sem þeim ber að takast á við. Það er auðvitað ómögulegt að lögreglan á Íslandi skuli ekki búa við sama laga- og reglugerðaumhverfi þegar kemur að því að vinna að þessum málum og málum gegn skipulagðri glæpastarfsemi, af því að við erum fyrst og fremst að tala um skipulagða glæpastarfsemi sem lögreglan þarf að takast á við. Við þurfum að styrkja lögregluna og þurfum að gera það myndarlega. Ég held að þingið eigi að halda áfram með það og ég veit ekki annað en að núverandi dómsmálaráðherra vilji takast á við þau mál. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir samfélagið allt að það verði gert.
Þær eru líka algjörlega óþolandi, þær morðhótanir sem ganga í þessu samfélagi. Ég hef oft varað við því í þessum sal og maður fær auðvitað mismunandi undirtektir, allt frá því að fjölmiðlar segi mann ljúga þegar maður greinir frá því hvernig staðan er, t.d. suður frá í Reykjanesbæ þar sem flóttamannastraumurinn var slíkur og fjöldinn að það réð enginn neitt við neitt. Það hefur komið í ljós í dómsölum, eins og við höfum haldið fram, að ofbeldissamfélög eru flutt hingað inn þar sem börnum er hótað af foreldrum, þar sem feður hóta að drepa dætur sínar og koma fram og segja það. Við viljum ekki svona, við viljum þetta ekki. Ég tek undir að sú hugsun sem hér kemur fram verði að veruleika.
Hv. þm. Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, talaði líka um að allir þyrftu að fara að lögum og ég held að við séum sammála því. Þá vil ég minna okkur á að það er líka í stjórnarskrá og lögum að atvinnufrelsi sé í landinu. Það er ekki hægt að banna atvinnustarfsemi sem hefur sannarlega ekki þau áhrif að við séum að útrýma náttúruauðlindum eða öðru slíku og vil ég minna á afstöðu Flokks fólksins til hvalveiða og blóðmerahalds. Það er algerlega gegn stjórnarskránni að banna slíka atvinnustarfsemi. Þegar við erum að tala hér um að fara að lögum þá þurfum við að fara að öllum lögum.