155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[11:47]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka þetta andsvar. Mér finnst reyndar í sama orðinu að það að tala um dauðarefsingar sé nánast dónaskapur við þingið, að slíkt sé borið hér á borð. Ég get ekki ímyndað mér að nokkur einasti þingmaður á þessu þingi vilji slík lög, hvorki fyrir hælisleitendur eða okkur sjálf. Ég átta mig ekki á því. (ArnG: Ég skal útskýra það fyrir þér.) Spurt var um brot þeirra sem hv. framsögumaður talaði um áðan og þá geri ég ráð fyrir því að verið sé að tala um meiri háttar brot sem slíkir einstaklingar fremja. Að senda þá til baka á hættusvæði held ég að hafi ekki verið gert vegna þess að flestir hælisleitendur sem hafa verið hér hafa komið frá löndum Evrópusambandsins sem búa við svipað atlæti og við. Útlendingastofnun og úrskurðarnefnd útlendingamála hafa kannað löndin sem þetta fólk er sent til og það kemur frá þessum löndum þar sem það hefur fengið hæli sem flóttamenn. Við erum ekkert að senda þetta fólk aftur til baka á vígvöllinn. Ég held ekki að nokkur einasti hælisleitandi hafi verið sendur á vígvöllinn eða þangað sem líf hans var í hættu. Grikkland og Ítalía eru ekki þannig lönd. Ég held að það sé mjög mikilvægt að við virðum rétt fólks til að flýja harðindi en við höfum tekið þá ákvörðun, þeim lögum var breytt í vor, að við veitum fólki ekki lengur hæli hér sem þegar hefur fengið hæli í öðrum löndum í kringum okkur. Það er í samræmi við þær nágrannaþjóðir sem við viljum bera okkur saman við og við þurfum að breyta lögunum í samræmi við það eins og aðrar þjóðir eru að gera.