155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[11:51]
Horfa

Ásmundur Friðriksson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég vil bara segja það að við eigum hiklaust að senda hælisleitendur til baka sem hafa brotið af sér á alvarlegan hátt, skilyrðislaust. Ég veit ekki um einn einasta einstakling sem hefur komið hingað með beinu flugi frá átakasvæðum, ekki einn einasta. Þeir koma frá Madríd, Mílanó og Aþenu. Þar hafa þeir fengið samþykkt að vera í landinu. Þeir eiga ekki svo að koma hingað til að leita að betri læknisþjónustu eða betri kjörum sem þekkjast á þessum markaði. Hv. þingmaður minntist á langveik börn. Auðvitað eru alltaf hjá ákveðnum hópum, inn á milli í þessum stóra hópi, veikindi og annað slíkt. En af hverju erum við þá að mismuna því fólki? Það virðist vera þannig að þeir sem fá umfjöllun fjölmiðla eru ekki sendir úr landi en svo er fólk sem mér er sagt að sé jafnvel verr statt en slíkir einstaklingar eru sendir úr landi vegna þess að það nær ekki athygli fjölmiðlanna. Eiga þá fjölmiðlarnir að stjórna því hverjir eru í landinu og hverjir ekki? Mér finnst það ekki sanngjarnt. Það nær líka ekki nokkurri einustu átt að við séum að mismuna hælisleitendum innan þessa hóps, hverjir eru sendir úr landi og hverjir ekki, vegna þess að fjölmiðlarnir hafa svo mikil áhrif á það að almenningsálitið fordæmir slíkan verknað. Það verður auðvitað að umgangast öll þessi mál með mikilli varúð. Við erum að tala um einstaklinga og ég veit ekki um neinn þingmann sem er á móti þessu fólki. Að tala um dauðarefsingar á sama tíma og veika stöðu þessa fólks nær ekki nokkurri átt. (ArnG: Þið eruð að leggja það til.) Það er ekki samboðið okkur að tala á þann hátt. Höfum bara reglurnar eins og annars staðar.