útlendingar.
Virðulegur forseti. Ég er á þessu frumvarpi og styð það heils hugar. En ég vísa því til föðurhúsanna að með því sé ég að samþykkja dauðarefsingu eða að dæma fólk til dauða. Dauðarefsing er, eins og við vitum, dómur þar sem fólk er tekið af lífi í rafmagnsstól eða með öðrum hætti; ótrúlega kvalafullur dauðdagi og ég mun aldrei á nokkurn hátt styðja slíkt. Það er því eiginlega með ólíkindum að við skulum vera að ræða það í þessu samhengi. Hvað erum við að ræða um? Jú, við erum að ræða um það að þeir sem koma hingað og leita réttilega þess réttar að fá að vera hér á Íslandi, flóttafólk, fólk sem fær hæli hér á landi, dvalarleyfi; að það fólk virði lög og reglur okkar lands. Ég spyr mig: Eigum við rétt á að vita hvort sá sem kemur hingað, millilendir í Evrópu og sækir hér um hæli, sé fyrrverandi stríðsmaður Hamas eða Hezbollah eða hafi verið einhvers staðar á því sviði? Jú, auðvitað eigum við rétt á því. Og eigum við að segja við þann mann að hann eigi fullan rétt á því að fá hæli hér á Íslandi? Ég segi nei. Ég segi nei vegna þess að staðan er sú í heiminum í dag að við erum með ákveðinn hóp manna sem hefur þau trúarbrögð, trúir því statt og stöðugt, að þeir hafi þau miklu völd að þeir geti kúgað konur algjörlega, að þær eigi engan séns. Það var meira að segja einhver sem orðaði það þannig að konur í Afganistan hefðu minni rétt en íkornar, eins og það var orðað. Við erum með ákveðna einstaklinga sem hafa verið aldir upp í því, skýrt og skorinort, að þeir séu æðri konum og hafi fullkominn rétt til að kúga konur.
Ég var að lesa frétt í morgun frá Evrópu þar sem einstaklingur lenti í fangelsi fyrir nauðgun. Honum var sleppt út. Hann var varla kominn út þegar hann framdi verknað aftur og þá var það morð. Ég spyr: Ef þetta hefði verið á Íslandi og við hefðum getað tekið þennan einstakling úr fangelsi og sent hann til síns heima; hvort það hefði, í tilfelli þessa lands í Evrópu, ekki sparað og komið í veg fyrir þennan hörmulega atburð? Við erum að tala um hreina og klára ofbeldismenn sem eru dæmdir í fangelsi fyrir ofbeldi. Að reyna að réttlæta það, að það sé í lagi vegna þess að aðstæður þeirra séu þannig — það hefur ekkert með aðstæður að gera, það hefur bara með persónuleika viðkomandi að gera, hvernig hann bregst við, hvort hann beitir ofbeldi eða beitir því ekki.
Ég var lögreglumaður í sjö ár á Suðurnesjum, í Keflavík. Á þeim tíma var gífurlegur fjöldi fólks sem safnaðist þar saman á vertíðum og lögreglan var yfirleitt fáliðuð. Ég hef lent í þeirri aðstöðu að vera í lögreglubíl þar sem allar rúður voru brotnar, fötin rifin utan af manni og maður var illa krambúleraður; maður hafði ekki séns í þann fjölda sem var ölvaður og beitti ofbeldi. Lögreglumenn eru fjölskyldumenn, konur, menn, einstaklingar, fólk sem á fjölskyldur. Þau eiga fullkomlega rétt á því, þegar þau fara að heiman frá sér, að búa við allt það öryggi sem hægt er til að geta snúið aftur heim. Þau eiga fullan rétt á því að vinnuumhverfi þeirra og aðstæður séu þannig að þau geti unnið sína vinnu án þess að eiga á hættu að skaðast. Því miður hefur staðan ekki verið sú undanfarið vegna þess að lögreglan hefur verið allt of fáliðuð. Sem betur fer — jú, það er verið að spýta í, það eiga að koma 28 lögreglumenn núna, en það þarf mun fleiri. Við þurfum líka að taka á landamærunum. Á landamærunum er staðan sú að við erum í Schengen en á sama tíma — og ég hef oft talað um þetta í þessum ræðustól — skila flugfélög sem fljúga hingað til Íslands farþegaskrá í 93% tilfella, í 7% tilfella skila þau ekki farþegaskrá. Einhver sagði að þetta væri nú óskaplega lítið, að þetta væri ekki nema í kringum 7%. En setjum það í samhengi við 2 milljónir manna, þá erum við að tala um 140.000. Ef við miðum við 3 milljónir erum við að tala um 210.000 manns sem koma hingað til landsins og enginn veit neitt hverjir eru. Og hvers vegna ætli Danir séu farnir að fylgjast með því hverjir koma yfir landamærin hjá þeim? Jú, það er vegna þess að það koma menn, börn, unglingar, frá Svíþjóð til að fremja glæpi í Danmörku. Þetta segir okkur að okkur ber skylda til að fylgjast með því hverjir koma til landsins. Þegar við erum að tala um þetta frumvarp erum við að segja það hreint út að þeir sem koma hingað til landsins eigi rétt á því að fá aðstoð. Við tökum við flóttamönnum og hælisleitendum, ákveðnum kvóta. Við eigum að taka vel á móti þeim og þeir eiga að fá öll sín réttindi. En að við þurfum að taka við einhverjum sem beitir ofbeldi — og eins og við höfum orðið vör við hafa sumir þessara manna rétt verið komnir til landsins þegar þeir byrja að beita ofbeldi — eigum við ekki að líða.
Við erum friðsöm þjóð og við viljum vera það áfram. En við verðum líka að læra af öðrum Norðurlöndum. Við verðum að læra af því hvernig ástandið er. Við sjáum þetta. Við þurfum ekki að lenda í þeirri aðstöðu sem Norðurlöndin eru í. Ég er í velferðarnefnd Norðurlandaráðs og hef heyrt þar ótrúlegar sögur um það hvernig ástandið er orðið annars staðar á Norðurlöndum. Ég segi bara: Guð hjálpi okkur ef við lærum ekki af því í eitt skipti fyrir öll og sjáum til þess að við lendum ekki á þeirri vegferð. Okkur, löggjafarþinginu, ber skylda til að vernda borgara okkar. Okkur ber skylda til að sjá til þess að þeir sem hingað koma, og við hleypum inn og tökum á móti með glöðu geði, séu ekki með hótanir og ofbeldi, beiti ekki ofbeldi hvort sem það er gagnvart einstaklingum eða hópum. Við erum komin á þann stað að við þurfum nauðsynlega að hugsa okkur oftar en tvisvar um og grandskoða það hverja við erum samþykkja. Og við verðum líka að sjá til þess, þegar okkur verða á þau mistök að samþykkja ofbeldismenn, að við höfum þann möguleika að senda viðkomandi úr landi.
Í vor lagði Flokkur fólksins fram breytingartillögu um að þessi lög yrðu sett inn; þá værum við ekki einu sinni að tala um þetta í dag. Hugsið ykkur. Ef breytingartillaga Flokks fólksins hefði verið samþykkt þá stæði ég ekki hér í ræðustól með þetta frumvarp til að reyna að mæla fyrir því og koma því að. Og af hverju erum við að því? Vegna þess að við treystum því ekki að þessari ríkisstjórn takist að samþykkja þetta, því miður. Það er, held ég, alveg borin von. Það væri gott ef einhver gæti útskýrt það fyrir mér hvers vegna í ósköpunum er hægt að verja það, og á hvaða forsendum, að ofbeldismönnum sem hafa fengið vernd hér, og við höfum tekið við glöðu geði, sé ekki vísað aftur þangað sem þeir komu án þess að segja að með því séum við að dæma viðkomandi til dauða, að við séum að tala fyrir dauðarefsingu. Við erum ekki að dæma manninn, við erum að dæma verk hans. Hann kom í þeim tilgangi, hann virðist ekki hafa annan tilgang, að nota ofbeldi til að koma sínu á framfæri. Og ef viðkomandi er dæmdur fyrir það ofbeldi, hefur fengið fangelsisdóm, á hann ekki rétt á því að vera hér. Við höfum enga þörf á því að flytja inn ofbeldismenn, við erum með nóg vandamál fyrir. Þess vegna segi ég: Tökum á landamærunum, eflum lögregluna, samþykkjum þetta og byrjum á að læra af mistökum annarra landa. Byrgjum brunninn áður að allir eru dottnir ofan í hann. Gerum það áður vegna þess að ef við ætlum að bíða verðum við, eins og gerðist í hinum löndunum, of sein með okkar aðgerðir.