155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[12:07]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. En ég verð að segja eins og er, ég veit ekki hvað hún er að lesa eða á hvaða blaðsíðu hún er í því sem hún er að lesa vegna þess að þetta er alls ekki á neinn hátt það sem ég var að fjalla um hérna áðan. Ég verð að segja það alveg eins og er að viðkomandi þingmaður er alveg úti á túni. En ég skal reyna að segja aftur hvað ég er að meina, það er það eina sem ég get gert. Við erum að fara eftir Dyflinnarreglugerðinni. Ekkert flókið. (Gripið fram í.) Við erum að fara eftir henni, bíddu, en við … (Gripið fram í.) Ég spyr þá hv. þingmann, hún hlýtur að geta komið með dæmi, (Gripið fram í.) ég bið hv. þingmann …

(Forseti (ÁsF): Ég bið þingmenn að gæta orða sinna.)

Ég bið hv. þingmann að koma með dæmi. Hvaða einstaklingar hafa komið beint frá stríðssvæði, fljúgandi beint án millilendingar til Íslands og eiga á hættu að lenda í þessari dauðarefsingu, eins og hún kallar það? Og hvernig getur það flokkast undir það þótt það sé stríð í einu landi núna að með því að senda viðkomandi þangað, þá séum við að dæma viðkomandi með dauðarefsingu? Dauðarefsing er þegar maður er tekinn af lífi. Hvernig í ósköpunum eigum við Íslendingar að geta tekið einhvern af lífi úti í heimi? Við gerum það ekki. (ArnG: Með því að senda hann þangað.) Það er alveg fáránleg hugsun. Það er staðreynd að allir sem hafa komið hingað hafa komið með millilendingu í Evrópu og eiga þar af leiðandi rétt á að fara þangað, til Evrópu. (Gripið fram í.) Ég vil bara fá dæmi um það hversu marga hún veit um sem hafa flogið beint frá Palestínu, beint frá Sýrlandi, beint frá Afganistan hingað til lands án millilendingar.

(Forseti (ÁsF): Ég vil minna þingmenn á að það er bara einn ræðumaður hverju sinni í salnum.)