155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[12:09]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Það eru alltaf blendnar tilfinningar sem vakna hjá mér þegar ég átta mig á því að fólk er að leggja eitthvað til af vanþekkingu vegna þess að það segir mér þó að ásetningurinn sé ekki illur, þannig að ég gleðst yfir því en engu að síður eru það vonbrigði. Hv. þingmaður biður um dæmi um það að einhver hafi flogið beint til Íslands. Það hefur bara enga þýðingu í þessu máli. Þessir einstaklingar sem þessi ákvæði eiga við um eru einstaklingar sem ekki er hægt að senda bara eitthvert annað (Gripið fram í.) heldur til heimalands. Nei, það er það sem þetta ákvæði snýst um. Það sem verið er að gera þarna er að það er verið að leggja til undantekningarreglu. Hv. þingmenn eru að leggja til undantekningu á grundvallarreglu um að það megi ekki senda fólk þangað sem líf þess eða frelsi er í hættu. Það stendur í ákvæðinu. Það má ekki senda fólk þangað sem það er í hættu. Við ætlum að gera undantekningu á því ef það hefur brotið af sér. (Gripið fram í.) Fyrirgefið, hv. þingmenn, hvernig er þetta …

(Forseti (ÁsF): Ekki tala í hliðarsölum.)

Það er ekki verið að tala um fólk sem hægt er að senda eitthvert á grundvelli Dyflinnarreglugerðarinnar eða vegna þess að það er komið með stöðu flóttamanns í öðrum löndum. Það er ekki verið að tala um það. Þeir einstaklingar eru ekkert þarna undir í framkvæmdinni vegna þess að það eru ríki sem eru talin örugg og fólk er sent þangað algerlega umhugsunarlaust nokkurn veginn. Þarna er verið að tala um fólk sem mætti almennt ekki senda, en það mætti gera það samkvæmt þessari undanþágu sem hv. þingmenn leggja til ef það hefur brotið af sér. Og við erum að tala um fólk sem er í hættu.