útlendingar.
Herra forseti. Hér er um mikilvægt mál að ræða. Ég vil byrja á því að þakka fyrir þær góðu undirtektir sem þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur veitt málinu. Ég er nokkuð viss um það að ef hans sjónarmið hefðu fengið að ráða frekar innan flokksins heldur en þau hafa gert fram að þessu væri flokkurinn í betri málum. Síðan tel ég líka að það væri einfaldlega betur komið fyrir íslensku samfélagi ef þessi sjónarmið hefðu fengið að fara meira upp á yfirborðið sem komu fram í máli hans.
Ég vil þó engu að síður gera örlitla athugasemd við það að hann hafi vænt flutningsmann um að hún væri ekki til í að fara að lögum hvað varðar atvinnufrelsi þegar sneri að hvalveiðum eða öðru dýrahaldi. Þá vil ég minna hv. þingmann á að hún lagði fram vantrauststillögu á þáverandi matvælaráðherra sem stóð þannig að banni á hvalveiðum að það var alveg ljóst að farið var á svig við lög. Því er alveg ljóst, hv. þingmaður, að hv. þm. Inga Sæland lagði mikið á sig til að farið væri að lögum og þá finnst mér ekki drengilegt að væna hana um að vilja fara á svig við atvinnufrelsisákvæði stjórnarskrárinnar. Sjálfstæðisflokkurinn er þarna að grýta steini úr glerhúsi, því að ef einhver flokkur hefur komið í veg fyrir að atvinnufrelsi til sjósóknar væri virt, þó svo það liggi fyrir hæstaréttardómar um að ekki sé gætt að jafnræðisákvæði stjórnarskrárinnar og 75. gr. hennar um atvinnufrelsi, þá hafa ráðamenn flokksins miklu frekar snúið út úr því. En ég er nokkuð viss um að Sjálfstæðisflokknum myndi reiða betur af ef hann horfði á þessi jafnræðissjónarmið og atvinnufrelsisákvæðið almennt og undanskildi ekki þegar helstu auðmenn telja sig eiga einhvern hag af því að ýta því til hliðar. Það liggur einnig fyrir álit mannréttindanefndar Sameinuðu þjóðirnar um það ákvæði, svo það sé tekið til greina og fært inn í þingið.
Enn og aftur vil ég þakka fyrir þær undirtektir sem fram komu hjá þingmanninum, en ég furða mig örlítið á þeirri ræðu sem fulltrúi Pírata flutti. Þetta frumvarp snýr að öryggi þeirra sem hér búa, landsmanna, og snýst einfaldlega um að hreinsa burt óværu af landinu sem er að brjóta lög og er hættuleg landsmönnum. Þetta er eitthvað sem ég tel að allir þingmenn ættu að geta sameinast um, ekki síst Píratar, að tryggja öryggi landsmanna. Að koma hér og væna framsögumann um að vilja koma á dauðarefsingu er náttúrlega alveg út úr korti. Ekki ætla ég að segja að þetta komi fram af einhverjum illvilja í garð Íslendinga heldur af einhverri misskilinni góðmennsku. Það er ekki þeim til góða sem búa hér og eru hælisleitendur og vilja fara að lögum að hafa í hópnum stórhættulega glæpamenn. Hvers vegna í ósköpunum vilja Píratar halda þeim hér og ekki hafa þann möguleika að vísa þeim úr landi? Mér finnst ótrúlegt að hlusta á þennan málflutning.
En orðræðan er að breytast og ég held að það sé mjög mikilvægt að við höldum henni innan marka og gerum þetta yfirvegað. Með því að neita þessu máli um framgang erum við að bjóða hættunni heim. Ég vara Pírata og aðra flokka stórlega við að streitast gegn því að stórhættulegum glæpamönnum sé vísað úr landi, hvort sem þeir hafa fengið hér stöðu flóttamanns eður ei. Við verðum bara að horfast í augu við staðreyndirnar. Það eru glæpagengi hér og ef maður skoðar sænsku miðlana þá hefur komið þar fram að hér eru sænsk glæpagengi á ferðinni, í viðtali við dómsmálaráðherra. Ég vona svo sannarlega að Píratar séu ekki að boða einhverja inngildingu fyrir þessa hópa í íslenskt samfélag. Ég segi það bara hreint út: Ég vil þetta fólk burt. Burt með það. Við eigum að taka á þessu með ákveðinni festu. Ég vona svo sannarlega að Píratar snúi við blaðinu í því að vilja halda í stórhættulega glæpamenn, þó svo þeir hafi fengið stöðu flóttamanna, og geri það af væntumþykju fyrir nágrönnum sínum, fyrir landsmönnum og samfélaginu sem þeir búa í.
Svíar eru í miklum vanda og ég vil vekja athygli á því að sá flokkur sem áður var kallaður nasískur og fasískur og ég veit ekki hvað og hvað, Svíþjóðardemókratar, er kominn inn í stjórnina. Það er mjög áhugavert, sérstaklega fyrir fólk í Samfylkingunni, að sænska Samfylkingin greiðir alltaf atkvæði með öllum frumvörpum sem Svíþjóðardemókratar koma að sem snúa að útlendingamálum og hælisleitendum. Sænska Samfylkingin myndi eflaust mæta hér upp og styðja þetta frumvarp í stað þess að vera kannski á hinn veginn, sitja jafnvel báðum megin borðs, það er erfitt að átta sig á því. Stundum boðar hún að það eigi að taka upp sömu reglur og á Norðurlöndunum og svo þegar er verið að vísa fólki úr landi sem hefur engan rétt á að vera hérna og búið að úrskurða um það á ýmsum stjórnsýslustigum, þá er hún komin í vörn fyrir því að það eigi ekki að virða lögbær yfirvöld.
Þetta er ekki gott og ég vil minna á að þegar við erum nú að tala um að miða við það sem gerist í Svíþjóð eða á hinum Norðurlöndunum þá eru þessi yfirvöld í nágrannaríkjunum að herða reglurnar. Ef við förum á þann stað sem Svíar og Danir eru á núna stöndum við eftir sem áður innan örfárra vikna eða mánaða þeim að baki. Hér er málaflokkur sem skiptir verulega miklu máli. Ég vona að menn vilji ekki inngilda glæpagengin og ég vona svo sannarlega líka að menn sætti sig ekki við að útlendingar séu allt að þriðjungur þeirra sem dvelja í fangelsum.
Það er nauðsynlegt að opna þessa umræðu á þinginu og ég vona svo sannarlega að hún verði málefnalegri en svo að þeir sem leggja hér fram ágæt frumvörp séu sakaðir um að leggja til dauðarefsingar. Það er náttúrlega alveg út úr korti. Við verðum líka að horfa á það að það er setið svolítið um þá sem hafa opnað þessa umræðu og reynt að rangtúlka orð þeirra. Við getum nefnt okkar ágæta vararíkissaksóknara. Hann lét orð falla sem voru óvarleg og þá er ekki að sökum að spyrja, lagst var á hann og reynt að lesa þau á hinn versta veg en það má líka lesa þau með þeim hætti að honum sé einfaldlega umhugað um okkar samfélag og að hann vilji tryggja að við séum ekki með fólk hér að óþörfu of lengi, sem er hættulegt og hefur jafnvel í hótunum um líflát og annað við fólk sem hefur ekkert sér til sakar unnið annað en að sinna sinni vinnu og gæta að því að reglum réttarríkisins sé framfylgt.
Svo er komið að þeim sem þráast við að fara að úrskurðum. Þá þarf auðvitað að beita valdi og það er aldrei fallegt. Þetta eru þvinganir og það er alveg víst að það er alls ekki létt verk fyrir þá lögreglumenn að vinna sem taka þátt í því að bera fólk út í flugvélar, alls ekki, heldur er þetta verk sem þeir þurfa að gera. Eitt af skylduverkum þeirra er að framfylgja reglum og lögum í landinu. Það er miður þegar fjölmiðlar og jafnvel þjóðkjörnir þingmenn reyna að draga upp ljóta mynd af þessum verkum, sem eru vissulega ekki óskastörf neins og taka eflaust á. Menn reyna auðvitað að vanda sig en valdbeiting er sjaldnast einhver fegurðarglíma. Það að setja lögregluna á sakamannabekk er auðvitað með ólíkindum.
Ef maður fer aftur til Skandinavíu, sem rétt er að ræða í þessu samhengi, þá sér maður að komin eru ákveðin öfl sem hafa talsverða vinnu við þennan málaflokk og til er orðinn nokkurs konar hælisiðnaður sem veltir á Íslandi tugum milljarða króna, sem er jafnvel farinn að streitast á móti öllum breytingum á regluverkinu til hins góða fyrir íslenskt samfélag, jafnvel máli eins og þessu, einföldu máli. Það að hæstv. dómsmálaráðherra skuli ekki hafa klárað þetta mál síðasta vor sem sneri að vararíkissaksóknara eða blásið það út af borðinu, sem átti að setja á hljóðkút og hefur eflaust verið gert þannig að hann tjái sig ekki meira um þessi viðkvæmu mál sem er mjög nauðsynlegt að fá fram í umræðunni — menn eru að vanda sig, segja þeir. En auðvitað er hinn pólitíski leikur einfaldlega sá að Vinstri grænir eða græn eða hvað á að kalla þá, halda á móti eðlilegum breytingum. Þetta er mjög skýrt mál sem þjóðin ætti að vera áfram um og allir flokkar á Alþingi. Ég vil minna á það að þeir sem áður kölluðu Svíþjóðardemókratana nasista greiða nú atkvæði í einu og öllu í útlendingamálum eins og þeir.
Aftur að Evrópu. Ef við skoðum það hvað Þjóðverjar eru að gera, sem opnuðu landamærin 2015 fyrir allt og öllum, þá eru þeir nú að þrengja. Við sjáum að Ítalir eru að þrengja verulega reglur, m.a. með því að vísa flóttamönnum til Albaníu ef ég man rétt. Þar verða þeir þar til búið er að skera úr um réttindi þeirra á Ítalíu. Þeir eru að ná talsverðum árangri. Ef maður flettir í blöðunum og fer yfir þann kostnað sem fer í þennan málaflokk og þá ásókn sem hefur verið, þó að núverandi ríkisstjórn sé vissulega búin að gera eitthvað, þá þurfum við að ná miklu betur utan um málaflokkinn. Ég vona svo sannarlega að hv. þm. Pírata sem hefur haft hátt um dauðarefsingar sjái sóma sinn í því að vera ekki að endurtaka það.