155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[12:31]
Horfa

Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir (P) (andsvar):

Forseti. Ég veit ekki hvernig ég á að skýra þetta betur. Hv. flutningsmaður málsins virðist telja að það að einstaklingur hafi ekki komið með beinu flugi til Íslands þýði óhjákvæmilega að hægt sé að senda hann eitthvert þar sem hann millilenti í millitíðinni. Það er ekki þannig. (IngS: Þannig eru reglurnar.) Þannig eru reglurnar ekki, hv. þingmaður. En eins og ég nefndi hér áðan þá hlýnar mér pínulítið um hjartaræturnar þegar ég átta mig á því að mál eru lögð fram af fákunnáttu en ekki af illum ásetningi. Mér hlýnar um hjartaræturnar við að hugsa til þess og við getum rætt það nánar utan þingsalar.

Í þessu máli erum við að tala um einstaklinga sem er eingöngu hægt að senda eitthvert þar sem þeir eru í hættu. Við erum ekki að tala um einstaklinga sem hægt er að senda eitthvert annað. Þetta er alveg skýrt. Annað er útúrsnúningur og hefur ekkert með þetta mál að gera. Þetta er undantekning á reglu sem segir að það megi ekki senda fólk í hættu. Þetta er alveg skýrt. Og já, það er fullt af flóttafólki á Íslandi, fullt af fólki sem hingað kemur sem ekki er hægt að senda neitt annað. Annaðhvort er hægt að veita því vernd hér á landi eða senda það til heimaríkis. Já. Ég man ekki tölurnar en ég get komið með þær fyrir hv. þingmenn ef þeir hafa áhuga á þeim. Þetta eru mál þar sem Ísland ber ábyrgð á meðferð umsókna viðkomandi. Það gerist nokkuð oft, sjaldnar en í öðrum ríkjum en nokkuð oft og þá, ef einstaklingi er veitt staða flóttamanns hér og það á að vísa honum úr landi, er það heim. Þarna er verið að leggja til undantekningu á þeirri reglu að ekki megi senda hann heim ef hann er í hættu þar, leggja til að það megi senda fólk heim í hættu, lífshættu, ef það hefur brotið af sér. Ég endurtek spurninguna: Er hv. þingmaður hlynntur þessu?