155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[12:33]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Það er nú jákvætt að hv. þingmaður telji að þetta frumvarp sé ekki lagt fram af neinum illvilja. Það er alveg rétt hjá hv. þingmanni. Við gerum þetta af væntumþykju og við erum að hugsa um öryggi Íslendinga. Við erum að hugsa um öryggi samfélagsins, öryggi barna, öryggi kvenna. Við erum bara að hugsa um íslenskt samfélag. Þetta er einmitt gott frumvarp, sett fram af væntumþykju fyrir íslensku samfélagi. Við viljum halda hér góðu og öruggu samfélagi á Íslandi þannig að við viljum eiga þann kost að geta losnað við fólk sem brýtur lögin. Ég er nokkuð viss um það að hinn almenni Pírati úti í samfélaginu … (ArnG: Ætlarðu ekki að svara spurningunni, hv. þingmaður?) — Ég er alveg viss um að hinn almenni Pírati í samfélaginu tekur undir með okkur í Flokki fólksins. Við viljum hafa Ísland öruggt og tryggt, ekki síst fyrir börnin. Við viljum halda þessari umræðu jákvæðri. Þetta er frumvarp sem gerir Ísland betra í að losna við óværu og hættulega glæpamenn, (Gripið fram í.) hvort sem þeir hafa fengið hér stöðu flóttamanns fyrr eða ekki. Ef þeir hafa sýnt að þeir bera enga virðingu fyrir gestgjöfunum og brjóta allar reglur þá viljum við í Flokki fólksins, ólíkt Pírötum eða alla vega einstaka þingmönnum Pírata, eiga þess kost að geta losnað við viðkomandi manneskju í burtu úr þessu góða, litla og fallega samfélagi. (ArnG: Þó að það sé út í rauðan dauðann? Þetta er skýrt.)