Kosning umboðsmanns Alþingis skv. 1. gr. laga nr. 85 1997, um umboðsmann Alþingis, með síðari breytingum, til fjögurra ára, frá 1. október 2024 til 30. september 2028.
Eins og hv. þingmönnum er kunnugt hefur Skúla Magnússyni, umboðsmanni Alþingis, verið veitt lausn frá embætti frá og með 1. október nk. Það er verkefni Alþingis lögum samkvæmt að kjósa umboðsmann og það er jafnframt forsætisnefndar Alþingis að gera tillögu til þingsins um einstakling til að gegna embættinu. Forsætisnefnd skipaði þriggja manna undirnefnd úr sínum hópi til að hafa á hendi tillögugerð til forsætisnefndar um einstakling við kosningu til embættis umboðsmanns Alþingis. Undirnefndina skipuðu sá sem hér talar, Oddný G. Harðardóttir og Líneik Anna Sævarsdóttir, en Líneik forfallaðist frá vinnunni á seinni stigum hennar. Undirnefnd forsætisnefndar naut ráðgjafar nefndar þriggja sérfræðinga, en hana skipuðu Ragnhildur Helgadóttir lagaprófessor og rektor Háskólans í Reykjavík, sem var formaður nefndarinnar, Ásmundur Helgason landsréttardómari og Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir mannauðsráðgjafi. Báðar nefndirnar störfuðu samkvæmt reglum sem forsætisnefnd hefur sett um undirbúning fyrir kosningu einstaklings til að gegna embætti ríkisendurskoðanda og embætti umboðsmanns Alþingis. Þær reglur er að finna á vef Alþingis.
Um kosninguna gildir ákvæði í 7. mgr. 82. gr. þingskapa sem segir að þegar kjósa á um einn mann séu þeir einir í kjöri sem tilnefndir eru og eigi hreyfa andmælum við því. Enn fremur byggist kosningin á ákvæði í 1. gr. laga um umboðsmann Alþingis en þar segir að forsætisnefnd Alþingis skuli tilnefna mann við kosninguna. Það hefur forsætisnefnd gert og tilnefnir Kristínu Benediktsdóttur. Aðrar tilnefningar hafa ekki borist og er Kristín Benediktsdóttir því ein í kjöri.
Forseti hefur ákveðið að kosningin verði með atkvæðagreiðslukerfinu eins og þingsköp heimila. Henni má jafna við leynilega skriflega kosningu.
Atkvæðagreiðslukerfið verður nú þannig stillt að töflurnar á veggjunum munu aðeins sýna hverjir hafa greitt atkvæði en ekki hvernig þeir greiddu atkvæði. Hið sama gildir um geymsluminni tölvunnar. Þeir sem kjósa Kristínu Benediktsdóttur ýti á já-hnappinn en þeir sem vilja skila auðu ýti á hnappinn sem merktur er Greiðir ekki atkvæði. Nei-takkinn er óvirkur. Gult ljós kviknar við miðhnappinn á borðum þingmanna þegar atkvæði hefur verið greitt, sama á hvorn hnappinn hefur verið ýtt. Eins kviknar aðeins gult ljós á veggtöflum.
[Gengið var til kosningar.]