155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[13:52]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir sína ræðu. Ég hef nú alltaf litið upp til hv. þingmanns hvað lýtur að því að vera vel að sér í þessum málum og þykir nú miður ef ég er orðin það illa að mér í málunum að ég geti ekki skilgreint Dyflinnarreglugerðina betur en svo að hún eigi ekki við um suma. Ég vissi ekki betur en að við gætum sent alla einstaklinga þangað sem þeir komu og það væri þá á ábyrgð þess lands sem hefði tekið við þeim að afgreiða málið.

En svo væri líka gaman að spyrja hv. þingmann að því hverjir það eru sem hafa borið ábyrgð á málaflokknum um áraskeið. Hverjir skyldu nú hafa valdið því, þegar breytingarnar áttu að eiga sér stað fyrir allnokkru til að reyna að sporna við því ófremdarástandi sem við sáum að var í uppsiglingu, í frumvarpi sem hæstv. dómsmálaráðherrar Sjálfstæðisflokksins voru að koma með hér og ætluðu að leggja fyrir af fullum vilja til að reyna að taka á vandanum, að þá útþynntist það alltaf endalaust og varð í raun hvorki fugl né fiskur fyrr en þá í vor? Og mig langar að spyrja hv. þingmann hvort það hefði ekki verið bragarbót að samþykkja breytingartillögu Flokks fólksins; ég bara hana eingöngu fram til að reyna að styðja við yfirlýsingar hæstv. dómsmálaráðherra. Ég vissi að dragbíturinn í ríkisstjórninni, Vinstrihreyfingin –grænt framboð, myndi náttúrlega leggjast gegn því eins og þau ætla að gera hér og nú, þau hafa gefið út að þau muni aldrei hleypa frekari breytingum á útlendingalöggjöfinni inn í þingið. Ég gat ekki séð neina aðra kosti í stöðunni en að koma með þetta frumvarp og reyna að fylgja því eftir að sú breyting verði gerð á útlendingalöggjöfinni sem heimilar okkur að taka glæpamenn og vísa þeim úr landi.