155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[13:57]
Horfa

Flm. (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Ég vil ekki ganga svo langt að ætla að setja ábyrgð dómsmálaráðherrans og ríkisstjórnarinnar yfir á kærunefnd útlendingamála. Það gæti ég náttúrlega alls ekki gert vegna þess að hér var dómsmálaráðherra og ríkisstjórn í lófa lagið að grípa inn í þegar þau sáu það ófremdarástand sem var að skapast eftir að kærunefndin hafði kveðið á um það, eins og hv. þingmaður réttilega bendir á, að fólk af ákveðnu þjóðerni gæti komið hingað og skilyrðislaust hlotið stöðu flóttamanna með öllum þeim réttindum og skyldum sem því fylgdu.

Hvað lýtur að þessum tæknilega ágalla á breytingartillögunni þá lá það samkvæmt orðanna hljóðan algerlega í breytingartillögunni, það liggur náttúrlega í hlutarins eðli, að um leið og einstaklingi er brottvísað af landinu þá hefur hann ekki lengur stöðu hér sem flóttamaður. En til að koma í veg fyrir slíkan misskilning, fyrst skilningurinn var ekki betri en þetta á rituðu máli, þá er búið að bæta því inn í þetta frumvarp þannig að það fer ekki á milli mála.

Jú, viljayfirlýsingin er skýr hjá Flokki fólksins og við höfum ævinlega staðið með því að koma böndum á þetta ófremdarástand. Við gerum okkur grein fyrir því að við höfum ekkert bolmagn til að eyða tugum milljarða á ári í beinan kostnað í þessum málaflokki þó að viðkvæmur sé. Ef rétt reynist að Vinstrihreyfingin – grænt framboð muni ekki samþykkja frekari breytingar á útlendingalöggjöfinni og komi þar með í veg fyrir að dómsmálaráðherra geti lagt fram þessa tillögu sem ég er að koma með hér, þá vænti ég þess, miðað við að vera búin að koma í veg fyrir allan misskilning og lagatæknilega annmarka, að þessi tillaga mín og þetta frumvarp mitt verði eindregið samþykkt af þeim sem raunverulega vilja breytingar.