155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[14:01]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég vil byrja á að þakka hv. þm. Birgi Þórarinssyni fyrir ágæta ræðu og undirtektir og eins fyrir skýran og góðan málflutning í gegnum tíðina að mestu leyti í þessu málum. Það sem mig langaði að ræða eru þau skilaboð sem við flytjum héðan út í samfélagið. Þau skipta talsverðu máli. Erum við að senda þau skilaboð út í stjórnkerfið sem er að fjalla um þessi mál að það eigi að standa við lögin, standa við úrskurði og framfylgja lögum? Borið hefur á því að það hefur ekki verið hægt að fá það algerlega á hreint, því að t.d. hafa komið fram tvöföld skilaboð frá Samfylkingunni. Þegar staðið er frammi fyrir brottvísun er allt í einu hlaupið upp í ræðustól eða haldið uppi málflutningi í fjölmiðlum um að ekki eigi að standa við þessar ákvarðanir sem eru búnar að fara lögbundna leið í kerfinu. Þess vegna skiptir verulega miklu máli hvaða skilaboð er verið að senda út í samfélagið, hvort við ætlum að framfylgja þeim lögum og reglum sem eru í gildi í samfélaginu og hvort menn ætla að koma regluverkinu á svipaðar slóðir og í nágrannaríkjunum. Mér heyrist að sumir flokkar tali tungum tveim hvað það varðar. Samfylkingin talar stundum um að það eigi að færa regluverkið nær því sem gerist á Norðurlöndunum en síðan þegar á að framfylgja úrskurðum eða ákvörðunum er það ekki hægt og menn eru jafnvel sakaðir um að ganga hart fram eða af annarlegum hagsmunum þegar á t.d. að framfylgja ákvörðun um brottvísun.