útlendingar.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þetta innlegg sem er mjög mikilvægt, því að auðvitað þarf að senda rétt skilaboð út og þá sérstaklega til umheimsins þegar kemur að móttöku hælisleitenda, að við séum ekkert frábrugðin öðrum löndum. Það skiptir algjörlega höfuðmáli og það hefur svo sannarlega tekist að færa regluverkið mun nær því sem gerist í kringum okkur.
Af því að hv. þingmaður nefndi sérstaklega Samfylkinguna í þessum efnum voru það náttúrlega mjög mikil vonbrigði að Samfylkingin skyldi ekki styðja frumvarpið í vor, vegna þess að formaður flokksins hafði talað fyrir því í upphafi umræðunnar að hún væri fylgjandi frumvarpinu í meginatriðum. Síðan kemur á daginn að flokkurinn situr hjá og er greinilega sundraður í þessu. Ég verð að segja það, herra forseti, að fyrir mitt leyti sýnist mér Samfylkingin hafa sýnt þegar við afgreiddum þetta frumvarp í vor að hún hefur hvorki vilja né burði til að herða á útlendingalöggjöfinni hér á landi. Það þarf að herða hana, við erum að herða hana og við höfum staðið okkur vel í því. Hæstv. dómsmálaráðherra hefur staðið sig frábærlega í því að herða þessa löggjöf og færa hana nær því sem er í kringum okkur og það skiptir verulegu máli.
Varðandi samfélagið þá er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það verður að vera festa í þessum málaflokki. Það er regluverk sem við fylgjum, lögmæt stjórnvöld taka á þessum málum og síðan er hægt að áfrýja málum til kærunefndar o.s.frv. og allt er það í föstum skorðum sem á að fylgja, þar á meðal Dyflinnarreglugerðin svo það sé nefnt hér. Því er alveg rétt hjá hv. þingmanni að það er brýnt að enginn losaragangur sé í þessum efnum. Ég fullyrði að það hefur orðið veruleg breyting til hins betra og það þarf að segja fólkinu í landinu að veruleg breyting hafi orðið. Tölurnar segja líka sitt og hér hefur umsóknum fækkað um helming, (Forseti hringir.) brottvísunum fjölgað um 70% o.s.frv.