155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

útlendingar.

20. mál
[14:05]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Mér finnst nú hv. þingmaður ganga nokkuð langt í því að miklast af verkum Sjálfstæðisflokksins í þessum málum, heldur of langt miðað við þróun mála og hvað var borað í gegnum lögin árið 2016. Okkur var komið í það ástand að ekki væri bara milljarða kostnaður heldur tugmilljarða kostnaður við þennan málaflokk. Auðvitað er það mikil fækkun þegar landamærin hafa verið nánast opin, hver og einn þröskuldur hefur eitthvað að segja en það þarf að gera miklu betur og ég held að við séum sammála um það, ég og hv. þm. Birgir Þórarinsson. En að tala um vasklega framgöngu hæstv. dómsmálaráðherra eða frábær verk — ef svo hefði verið hefði þetta frumvarp verið gripið á lofti í vor og lögfest. Þó ætla ég ekki að kenna henni um það. Hún virðist hafa vilja til að ganga í verkin en hún er bundin af Vinstri grænum og kemst því miður ekki þangað sem hún ætlar sér. Það er kannski þessi vandi sem þjóðfélagið líður fyrir, í staðinn fyrir að við værum sameinuð að ræða þessi mál, megnið af stjórnmálaflokkunum eins og t.d. á hinum Norðurlöndunum þar sem er orðinn almennur skilningur á þessu. Ég hef t.d. ekki orðið var við það að danska sjónvarpið sé að mála að lögreglumenn sem framfylgja útlendingalögunum ljótum litum eins og RÚV virðist gera hér og sitja um allar aðgerðir lögreglunnar sem eru viðkvæmar í þessum málum. Ég held að það skipti verulega miklu máli að sem flestir þingmenn á hinu háa Alþingi tali skýrri röddu um að það þurfi að fylgja þessum málum áfram af sanngirni og festu til að koma betri skikk á þetta.