útlendingar.
Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni og þakka honum fyrir þetta. Það er mjög mikilvægt að það sé sem víðtækust samstaða hér í þingsal og meðal þingheims um að færa þennan málaflokk í betra horf og til þess sem er að gerast í nágrannalöndum okkar. Við vitum að rúmlega 60% þjóðarinnar telja að það sé of mikið af flóttafólki sem kemur til landsins og við eigum að hlusta á það. Þess vegna voru það gríðarleg vonbrigði að Samfylkingin skyldi ekki styðja við bakið á þessu frumvarpi þegar það var í þinginu í vor, því að þetta er flokkur sem er að mælast með töluvert fylgi í skoðanakönnunum. Hvað ætla þeir að gera eftir kosningar? Ætla þeir að snúa þessu við? Ætla þeir að draga úr því regluverki sem við höfum verið að setja hér? Maður spyr sig, maður veit það ekki vegna þess að þeir sátu hjá og sáu ekki mikilvægi þess að taka á þessum málaflokki eins og maður hélt að nýr formaður myndi gera. Það er rétt að halda því til haga að það er mjög mikilvægt að við náum sem mestri samstöðu um þetta. Á undanförnum árum hefur orðið gríðarlegur fólksflótti í heiminum. Við sjáum hvað er að gerast í Miðausturlöndum þar sem jaðrar við að það sé að brjótast úr allsherjarstríð. Fólk er farið að flýja Líbanon og við þekkjum náttúrlega Gaza og það, Úkraínu og Súdan. Fjölmörg lönd búa við styrjaldir og stríðsrekstur, því miður. Því er viðbúið að þessi flóðbylgja haldi áfram og þá er algerlega nauðsynlegt að við Íslendingar höfum nákvæmlega sama regluverk og er í kringum okkur, (Forseti hringir.) eins og í Danmörku þar sem regluverkið hefur verið hert mjög í tíð sósíaldemókrata, svo því sé haldið til haga.