endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Herra forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar á rekstrarumhverfi fjölmiðla. Þetta er á þskj. 40, 40. mál. Flutningsmenn auk þess er hér stendur eru hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, Ásmundur Friðriksson, Jón Gunnarsson, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Njáll Trausti Friðbertsson, Vilhjálmur Árnason, Teitur Björn Einarsson og Birgir Þórarinsson. Þetta er í annað skipti sem þetta frumvarp er lagt fram, það var lagt fram á síðasta þingi en hlaut ekki afgreiðslu.
Með frumvarpi þessu eru lagðar til breytingar á lögum um Ríkisútvarpið sem felast í formbreytingu á rekstri Ríkisútvarpsins, fjármögnun starfseminnar og takmörkunum á fyrirkomulagi auglýsinga. Þá eru lagðar til breytingar á lögum um virðisaukaskatt og lögum um tryggingagjald er varða starfsemi sjálfstæðra fjölmiðla. Markmið frumvarpsins er að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla gagnvart ríkisreknu fjölmiðlafyrirtæki, gera rekstrarumhverfi fjölmiðla heilbrigðara og að einfalda rekstur og alla lagaumgjörð í kringum Ríkisútvarpið.
Með lögum nr. 6/2007, um Ríkisútvarpið ohf., var gerð breyting á rekstrarformi þess og tók opinbert hlutafélag við rekstri, eignum og skuldum. Verði frumvarp þetta að lögum verður á ný gerð breyting á rekstrarformi Ríkisútvarpsins sem verður ríkisstofnun með sjálfstæða stjórn, útvarpsráð. Fjármögnun rekstrar verður fyrst og fremst með beinum framlögum úr ríkissjóði samkvæmt fjárlögum hvers árs í samræmi við þjónustusamning sem ráðherra er skylt að gera. Þá hefur stofnunin einnig tekjur af auglýsingum en í frumvarpinu eru settar skorður við umfangi þeirra og verður stofnuninni t.d. ekki heimilt að stunda markaðsstarfsemi vegna auglýsinga.
Raunar tel ég að rök séu til þess að draga Ríkisútvarpið alfarið út af auglýsingamarkaði en þetta frumvarp gengur ekki svo langt. Við flutningsmenn erum að leitast við að tryggja að rekstur ríkisfyrirtækis á fjölmiðlamarkaði hafi sem minnst áhrif á rekstrarumhverfi sjálfstætt starfandi fjölmiðla samhliða því að gera breytingar á skattalegu umhverfi sjálfstæðra fjölmiðla og þá fyrst og fremst í formi skattalegra ívilnana. Umsvif ríkisvaldsins á samkeppnismarkaði þrengja eðli máls samkvæmt að einkareknum fyrirtækjum og skiptir engu hvort um fjölmiðla eða aðrar starfsgreinar er að ræða. Þegar ákvörðun er tekin um að ríkið skuli stunda ákveðna atvinnustarfsemi sem að hluta eða öllu leyti er í samkeppni við einkaaðila er um leið verið að taka ákvörðun um að draga úr möguleikum annarra á markaði. Flutningsmenn líta svo á að það sé skylda löggjafans að tryggja að þau áhrif séu lágmörkuð eins og kostur er. Um það verður ekki deilt að umsvif ríkisins á innlendum fjölmiðlamarkaði gera sjálfstæðum fjölmiðlum erfitt fyrir, kippa rekstrargrundvelli undan sumum miðlum og veikja möguleika annarra. Strandhögg erlendra samfélagsmiðla á íslenskum auglýsingamarkaði gerir stöðuna enn erfiðari.
Ég ætla að fullyrða, hæstv. forseti, að lögbundin forréttindi Ríkisútvarpsins hafi komið í veg fyrir heilbrigða samkeppni á jafnræðisgrunni, til að mynda með því að bjóða auglýsendum upp á afslátt og/eða tilboð sem öðrum fjölmiðlum, sem ekki njóta niðurgreiðslu frá hinu opinbera, er ekki mögulegt að keppa við. Og afleiðingin, eins og við þekkjum öll, er veikburða fjölmiðlun og veikburða fjölmiðlamarkaður.
Erfitt rekstrarumhverfi og áralangur taprekstur margra einkarekinna fjölmiðla hefur verið til skoðunar undanfarin misseri og í rauninni undanfarin ár. Í skýrslu fjölmiðlanefndar frá 25. janúar 2018 til mennta- og menningarmálaráðherra var bent á hvaða ástæður byggju að baki þessu erfiða rekstrarumhverfi, nánar tiltekið samkeppni einkarekinna fjölmiðla við Ríkisútvarpið, samkeppni við erlenda fjölmiðla og flutningur auglýsinga úr hefðbundnum fjölmiðlum á veraldarvefinn, svo sem til Google og Facebook. Er þar m.a. varað við því að áframhaldandi veiking fjölmiðla hér á landi hafi neikvæð lýðræðisleg og menningarleg áhrif í samfélaginu. Af þessu leiðir að nú er svo komið að fjölmiðlar hafa hvorki fjárhagslegt bolmagn til að sinna hlutverki sínu sem „varðhundar almennings“, svo að notuð séu orð Mannréttindadómstóls Evrópu, né fjárhagslegt bolmagn til að framleiða og miðla íslensku efni.
Þá er rétt að líta til þess að í áliti Samkeppniseftirlitsins nr. 4/2008, um samkeppnishömlur sem stafa af stöðu og háttsemi Ríkisútvarpsins á markaði fyrir sölu auglýsinga í ljósvakamiðlum, bendir stofnunin á þá samkeppnislegu mismunun sem leiðir af stöðu Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði. Í álitinu vísar Samkeppniseftirlitið til þess að tekjur Ríkisútvarpsins af sérstöku gjaldi sem Skatturinn leggur á skattskylda einstaklinga og lögaðila teljist til ríkisaðstoðar í skilningi samkeppnislaga sem sé til þess fallið að skekkja stöðuna á samkeppnismarkaði. Nauðsynlegt er því að bregðast við þessum alvarlegu ábendingum Samkeppniseftirlitsins.
Frumvarpið mælir fyrir um afnám útvarpsgjaldsins en að mati okkar, sem stöndum að þessu frumvarpi, eru knýjandi rök á bak við þá breytingu. Núverandi fyrirkomulag felur í sér að Ríkisútvarpið fær ávallt fjárveitingu að lágmarki því sem nemur útvarpsgjaldi sem lagt er á alla skattskylda einstaklinga og lögaðila en í því felst að fjárveitingin tekur ekki mið af því hve mikla fjármuni Ríkisútvarpið þarf til að sinna lögbundnu hlutverki sínu. Núverandi fyrirkomulag fjármögnunar verður því að teljast óeðlilegt og sérlega óheppilegt. Klippt er á milli fjármögnunar og þróunar rekstrarkostnaðar vegna lögbundinna verkefna. Fjárveitingar til Ríkisútvarpsins ráðast af fjölda skattgreiðenda á aldrinum 16–67 ára, fjölda lögaðila og fjárhæð útvarpsgjalds sem endurspeglar ekki þróun raunverulegra útgjalda. Hlutverk og þjónusta Ríkisútvarpsins er nánast að öllu leyti sú sama, óháð fjölda skattgreiðenda hverju sinni. Auknar tekjur Ríkisútvarpsins eru því ekki í neinu samræmi við þær skyldur sem á því hvíla enda eru ekki lagðar neinar ríkari skyldur á Ríkisútvarpið samhliða fólksfjölgun sem felur sjálfvirkt í sér hækkun tekna Ríkisútvarpsins af útvarpsgjaldinu. Það verður að hafa í huga að útvarpsgjaldið hefur tekið töluverðum breytingum í áranna rás en allt fram til gildistöku eldri laga um Ríkisútvarpið var aðeins eitt útvarpsgjald innheimt fyrir einkaafnot fjölskyldu af hverju sjónvarpstæki fyrir sig, í stað þess að gjaldið legðist persónulega á hvern og einn, óháð því hvort gjaldandi ætti yfir höfuð möguleika á því að móttaka útsendingar Ríkisútvarpsins, að ekki sé talað um alveg óháð því hvort viðkomandi horfir eða hlustar nokkurn tímann á það sem í boði er á vegum ríkisins. Jafnframt lagðist útvarpsgjaldið ekki á lögaðila. Af þessu leiðir að mun fleiri einstaklingar greiða nú útvarpsgjaldið en fyrir gildistöku þessara laga að viðbættum öllum lögaðilum.
Í frumvarpinu felst að tekjuöflun Ríkisútvarpsins verður sem sagt einfölduð með fækkun tekjustofna. Frumvarpið mælir ekki fyrir um að tekjur Ríkisútvarpsins lækki, enda er fjármögnun fyrst og fremst háð fjárlögum hverju sinni í samræmi við lög og gildandi þjónustusamning. Ekki er hins vegar útilokað að beint ríkisframlag lækki að einhverju marki verði frumvarpið að lögum, enda mælir það fyrir um að Ríkisútvarpið skuli hætta markaðsstarfsemi. Tekjur af kostun munu hverfa og reikna má með því að auglýsingatekjur lækki í samræmi við takmörkun á umsvifum Ríkisútvarpsins á auglýsingamarkaði líkt og lagt er til. Á móti kemur augljós sparnaður í rekstri jafnt er varðar fjölda stöðugilda og beinan og óbeinan markaðskostnað, og það hleypur á hundruðum milljóna.
Heildartekjur Ríkisútvarpsins voru 8,7 milljarðar kr. á liðnu ári. Að mati frumvarpshöfunda gæti Ríkisútvarpið hæglega sinnt lögbundnum skyldum sínum fyrir talsvert lægri fjárhæð, til að mynda með því að nýta þá fjármuni sem til eru í þau verkefni sem lögbundin eru í stað þess að fjármagna starfsemi sem Ríkisútvarpið ætti ekki að sinna, t.d. hlaðvarpsgerð. Breytingar sem hér eru lagðar til á fjármögnun Ríkisútvarpsins fela ekki í sér neina takmörkun á sjálfstæði stofnunarinnar sem er tryggt í 1. gr. frumvarpsins. Fjármögnun Ríkisútvarpsins er nú þegar háð lagasetningu Alþingis og þjónustusamningi ráðherra. Frumvarpið hefur þannig í för með sér breytt fyrirkomulag þar sem fjármögnun Ríkisútvarpsins með almannafé verður í samræmi við þann kostnað sem nauðsynlegt er að standa straum af svo að stofnunin geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu. Þá fela breytingarnar augljóslega í sér að aukið gegnsæi skapast er varðar meðferð opinberra fjármuna.
Herra forseti. Ég vil benda á í þessu sambandi, þó að það komi ekki fram í greinargerð með frumvarpinu, að auðvitað er hægt að hugsa sér aðra leið er varðar fjármögnun Ríkisútvarpsins. Ein er sú, og hún er mér ekki á móti skapi, að við skil á skattauppgjöri, skattskýrslu, skuli allir skattskyldir aðilar, einstaklingar og lögaðilar, merkja við ef þeir kjósa að greiða útvarpsgjald til Ríkisútvarpsins. Það sem fengist með þessu er auðvitað það að það fer að skipta verulega miklu máli fyrir Ríkisútvarpið að áskrifendur séu ánægðir með þá þjónustu sem þeir fá, að skattgreiðendur sjái ástæðu til þess að greiða útvarpsgjaldið sjálfviljugir og ef þeir eru óánægðir þá hætta þeir við að greiða alveg eins og þegar þeir segja upp áskrift að fjölmiðlum sem eru sjálfstætt starfandi. Með þessu myndi það auðvitað breytast að Ríkisútvarpið yrði undir svipuðu agavaldi og sjálfstæðir fjölmiðlar þar sem hlustendur, notendur þjónustunnar, hafa beina möguleika til þess að að lýsa ánægju sinni eða óánægju með það sem gert er. Það er hins vegar ekki efni þessa frumvarps, við erum bara að benda á þetta hér. En allir lögaðilar sem eru fjármagnaðir af hinu opinbera, hvort sem um er að ræða opinberar stofnanir eða opinber hlutafélög, eru eðli máls samkvæmt alltaf háðir fjármagni frá hinu opinbera. Í því samhengi skiptir engu hvort kveðið sé á um innheimtu útvarpsgjalds í lögum um Ríkisútvarpið sem renni að öllu leyti til stofnanirnar. Fjárhæð útvarpsgjaldsins er ákveðin í fjárlögum hverju sinni, rétt eins og fjármögnun allra annarra stofnana. Útvarpsgjaldið sem slíkt tryggir Ríkisútvarpinu því ekki meira sjálfstæði en öðrum stofnunum og Ríkisútvarpið yrði ekki háðara stjórnvöldum nái þær breytingar fram að ganga sem hér er lagt til. Flutningsmenn benda einnig á að álagning skatts, líkt og útvarpsgjalds, stuðlar að framkvæmd sem stríðir gegn ábyrgri ráðstöfun á fjármunum hins opinbera þar sem slík álagning byggist í raun ekki á þörfum, líkt og ég sagði áðan, Ríkisútvarpsins miðað við rekstrarkostnað hverju sinni heldur á fyrir fram ákveðnum forsendum sem miðast við fjölda skattgreiðenda á hverjum tíma.
Herra forseti. Ég ætla síðan að víkja að þeim tillögum sem við leggjum hér samhljóða fram sem hafa það að markmiði að renna styrkari stoðum undir rekstur sjálfstætt starfandi fjölmiðla, að reyna aðeins að jafna samkeppnisstöðuna sem er ójöfn. Þær tillögur sem ég fór yfir hér áðan eru hluti af því en það þarf meira að koma til. Við sem stöndum að baki þessu frumvarpi höfum öll, hvert um sig, með sínum hætti, varað við að beinir ríkisstyrkir til að styðja við bakið á einstökum fyrirtækjum eða atvinnugreinum festist í sessi, enda reynslan af því ekki sérlega góð. Það er ákveðin þversögn fólgin í því að reyna að styðja við frjálsa og opna fjölmiðlun með beinum ríkisstyrkjum og millifærslu, svo að ég undirstriki það, og það hef ég sagt áður hér og ítrekað í ræðustól: Frjálsri fjölmiðlun er fátt hættulegra en að vera háð opinberum styrkjum og nefndum á vegum hins opinbera sem skammtar fjármuni til að standa undir einstökum þáttum í rekstrinum. Fjölmiðlun sem er háð hinu opinbera með beinum hætti með styrkjum verður aldrei frjáls nema í orði. Í stað beinna ríkisstyrkja er lagt til að sjálfstæðir fjölmiðlar njóti skattaívilnana sem eru samræmdar og gegnsæjar. Núverandi fyrirkomulag á þessum styrkjum, sem ég gerði hér að umtalsefni, hefur sætt mikilli gagnrýni. Við erum með þessum tillögum að reyna að koma til móts við þau sjónarmið og reyna að skapa grunn að víðtækari sátt um starfsumhverfi einkarekinna fjölmiðla þar sem allir sitja við sama borð og fá þá hlutfallslega sömu ívilnun.
Frumvarpið gerir ráð fyrir tvenns konar breytingum á skattumhverfi sjálfstæðra miðla, annars vegar með undanþágu frá greiðslu tryggingagjalds upp að vissu marki og hins vegar með því að fella niður virðisaukaskatt af áskriftum innlendra fjölmiðla, prentmiðlum, netmiðlum og ljósvakamiðlum. Með breytingunum er leitast við að styrkja rekstur fjölmiðla, hlutfallslega fæst sama lækkun á hvern fjölmiðil miðað við launakostnað og áskriftartekjur og er skattaívilnunin þannig byggð á rekstri einstakra fjölmiðla. Samkvæmt frumvarpinu verður því ekki þörf á að opinber nefnd meti hvort umsókn fjölmiðils fullnægi tilteknum skilyrðum heldur tæki sú ívilnun sem felst í undanþágunni mið af starfsemi hvers og eins fjölmiðils án þess að til kostnaðar stofnist af hálfu ríkis eða fjölmiðilsins sjálfs. Þess ber að geta, frú forseti, að flest ríki í Evrópu leggja sérstaka áherslu á að tryggja stöðu frjálsra fjölmiðla með skattalegum aðgerðum og/eða beinum fjárhagslegum stuðningi, og vísa ég í þeim efnum til greinargerðarinnar.
Frú forseti. Þær hugmyndir sem við leggjum fram og tillögur eru því marki brenndar að meðan við höfum hér og rekum fyrirtæki sameiginlega, með sameiginlegum sjóðum okkar, sameiginlegum fjármunum, sem heitir Ríkisútvarpið, þá verður alltaf ójafnræði á fjölmiðlamarkaði. Ég hef mínar skoðanir á réttmæti þess að ríkið sé að stunda fjölmiðlarekstur. En ég geri mér líka grein fyrir því að líklegast er meiri hluti þingmanna, jafnvel meiri hluti þjóðarinnar, á því að það sé nauðsynlegt að reka ríkisfyrirtæki á fjölmiðlamarkaði. Það er bara skoðun sem ég virði. Ég er ekki sammála henni en ég virði hana. En þá bið ég menn um tvennt. Annars vegar að ganga þannig frá málum að rekstur Ríkisútvarpsins hafi sem minnst neikvæð áhrif á rekstur sjálfstætt starfandi fjölmiðla og hins vegar að menn viðurkenni að það sé skynsamlegt og nauðsynlegt, vegna þess hve mikilvægt það er fyrir okkur sem opið frjálst samfélag að hér séu til öflugir og fjölbreytilegir fjölmiðlar, fjölmiðlar sem nálgast hlutina með mismunandi hætti og út frá mismunandi sjónarhornum, að þeir hafi raunverulega möguleika til að starfa og veita stjórnvöldum, fyrirtækjum, okkur hér á þingi og öðru það nauðsynlega aðhald sem opið og frjálst samfélag krefst og nauðsynlegt er þannig að við fáum þrifist. Þess vegna verðum við — þó að það geti verið gagnrýnisvert á ýmsum öðrum sviðum, ég hef aldrei verið sérstakur talsmaður skattalegra ívilnana nema í ákveðnum hlutum. Það eru rök fyrir því, frú forseti, að nú tökum við okkur til og styrkjum rekstrargrunn sjálfstæðra fjölmiðla með skattalegum aðgerðum, ívilnunum, þegar kemur að tryggingagjaldi, upp að vissu hámarki og síðan niðurfellingu á virðisaukaskatti af áskriftartekjum sem mér sýnist að sé að verða meginregla í Evrópu.
Frú forseti. Ég óska eftir því að þetta frumvarp gangi til hv. allsherjar- og menntamálanefndar að lokinni þessari umræðu.