endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir prýðilega ræðu og stuðninginn, að mestu. Mér fannst þó gæta ákveðins misskilnings. Það gæti líka verið vegna þess að 11. gr. frumvarpsins sé ekki nægilega skýr og vel orðuð og þá bið ég hv. allsherjar- og menntamálanefnd að fara betur yfir það. Ástæðan fyrir því að þessi grein er þarna er auðvitað að við erum að reyna að tryggja að þeir sem telja t.d. á rétt sinn gengið í fréttaflutningi Ríkisútvarpsins hafi einhvern farveg til þess að leita eftir því að þeirra hlutur sé réttur við, sé þess þörf eða efnislegar ástæður til. Það eru auðvitað mýmörg dæmi um það að fjölmiðill sem er án agavalds, eins og ég hélt hér fram áðan — Ríkisútvarpið er enginn venjulegur fjölmiðill vegna þess að þetta er fjölmiðill án agavalds, án agavalds frá eiganda, án agavalds frá áskrifendum sínum, auglýsendum o.s.frv. Þess vegna þarf að útbúa einhvern farveg fyrir aðila, fyrirtæki, einstaklinga o.s.frv. sem telja að þeir njóti ekki sannmælis, t.d. í frétta- og dagskrárgerð Ríkisútvarpsins. Það er það sem við erum að reyna að gera hérna.
Því spyr ég hv. þingmann: Getur hann tekið undir með mér þegar ég held því fram að það sé mjög erfitt og nær útilokað miðað við reynsluna — og ég veit að okkar ágæti fyrrverandi forseti, Ólafur Ragnar Grímsson, hefði ýmislegt við fréttaflutning Ríkisútvarpsins að athuga síðustu daga þar sem þeir með svívirðilegum hætti taka upp fréttir (Forseti hringir.) frá Fox News fréttastöðinni án þess að ganga úr skugga um það (Forseti hringir.) að fréttin sé rétt og sverta mannorð fyrrverandi forseta okkar.