endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Frú forseti. Ég tek auðvitað undir markmið þess sem kemur þarna fram. Það er síðan bara spurning hvort þetta sé endilega rétta útfærslan. Við fyrsta yfirlestur á greininni þá fannst mér vera svolítið miklar umbúðir í kringum hana. En það má vera að þetta sé leiðin. Ég myndi einfaldlega halda að það gæti þá verið verkefni stjórnar að taka á þessum hlutum, þ.e. ef fréttastjóri fer ekki af einhverju sem er augljóslega ekki rétt. Það er eitthvað sem er einfaldlega rétt að ræða og fara betur yfir. Það er mín reynsla af öðrum vettvangi að verklagsreglur, umbúnaður, gæðahandbækur og allt þetta — að það sé eins gott að hafa þetta bara þunnt en þó virkt. Og ef við getum komist hjá því og leyst hlutina í gegnum stjórn og ábyrgan fréttastjóra þá myndi ég telja að það væri kannski frekar leiðin.