155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.

40. mál
[14:52]
Horfa

Sigurjón Þórðarson (Flf) (andsvar):

Frú forseti. Jú, það er vissulega rétt að hafa einhvern farveg og það er alveg skýrt í mínum huga hvernig á að takast á við þau dæmi sem voru nefnd. Ég átta mig í rauninni ekki á því hvers vegna útvarpsstjóri hefur ekki tekið á þeim málum nú þegar. Mér finnst þetta vera þannig mál að það eigi ekki að þurfa að ræða það heldur hefði átt að vera búið að stíga inn í þessi mál. Hvað sem því líður þá eru líka önnur sjónarmið sem maður heyrir erlendis frá. Það verður alltaf einhver óánægja með efnistök ríkisfjölmiðla, hún er í Bretlandi og víðar. Það verður aldrei hin fullkomna ánægja. Það verður aldrei það mikið gæðastarf. Það verður alltaf einhver umræða um þetta í samfélaginu.

Þau dæmi sem hv. þingmaður nefndi hérna — mér finnst alveg ótrúlegt að það sé ekki búið að biðjast velvirðingar á þeim fréttaflutningi og hvernig var staðið að tilkynningum um þessi mál sem voru nefnd í umræðunni. Það er bara eitthvað sem ég hefði talið rétt í siðuðu samfélagi. Svona gera menn ekki, eins og var gert á RÚV. Að öðru leyti þá ítreka ég bara að ég held að þetta sé jákvætt frumvarp. Fjármögnunin er ekki sanngjörn eins og hún er og einnig tel ég rétt að skera fituna og fara yfir ákveðna boðun sem ég tel vera í Ríkisútvarpinu.