endurskoðun á rekstrarumhverfi fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég kem hér upp sem meðflutningsmaður á þessu góða máli hv. þm. Óla Björns Kárasonar. Eins og fram kemur í greinargerð er Ríkisútvarpið rekið fyrir skattfé almennings en því til viðbótar er þjóðarútvarpið kappsamur þátttakandi á auglýsingamarkaði. RÚV hefur sömuleiðis verið duglegt að færa út kvíarnar en nýjasta dæmið um innrás RÚV á samkeppnismarkað er á íslenskan hlaðvarpsmarkað. Ég hef einmitt farið yfir það hér nokkrum sinnum að ég hef miklar áhyggjur af samkeppnissjónarmiðum með hliðsjón af blómlegum samkeppnisrekstri annarra íslenskra hlaðvarpa, hlaðvarpa sem eru ekki rekin fyrir skattfé almennings. RÚV er grimmur samkeppnisaðili á auglýsingamarkaði og RÚV lætur engin verkefni sér óviðkomandi, hvort sem það er að útvarpa dægurtónlist, halda úti hlaðvarpi eða bara TikTok-rás.
Ég tek undir með hv. fyrsta flutningsmanni að RÚV ætti að draga saman seglin og einbeita sér að lögbundnu hlutverki sínu. Frjálsir fjölmiðlar á Íslandi róa lífróður í skugga yfirburðastöðu RÚV og við horfum á þá hvern á fætur öðrum leggja upp laupana. Þessu er ágætlega lýst í greinargerð og hv. fyrsti flutningsmaður hefur sömuleiðis komið inn á þessa stöðu. Yfirburðastaða ríkisins á fjölmiðlamarkaði er gríðarleg og hún hefur bara styrkst á undanförnum árum. Á meðan staðan er óbreytt verður ómögulegt að tryggja heilbrigða samkeppni á markaðnum. Þetta er óásættanleg staða og markmið þessa frumvarps er því bæði gott og þarft, að jafna samkeppnisstöðu einkarekinna fjölmiðla gagnvart ríkisreknu fjölmiðlafyrirtæki og gera rekstrarumhverfi fjölmiðla heilbrigðara.
Hv. þm. Óli Björn Kárason hefur m.a. farið hér yfir hvernig núverandi fyrirkomulag ríkisstyrkja til frjálsra fjölmiðla hefur verið gagnrýnt en í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á því fyrirkomulagi sem ætti að njóta betri stuðnings og betri sáttar. Kerfið sem hér er lagt til felur í sér samræmdar og gagnsæjar skattaívilnanir. Ég vonast til að fleiri þingmenn leggist á sveif með okkur þingmönnum Sjálfstæðisflokksins undir forystu hv. þm. Óla Björns Kárasonar og heyrist reyndar á umræðunni hér að einhverjir hafi þegar lýst þeirri skoðun sinni.