umboðsmaður sjúklinga.
Forseti. Öll getum við átt á hættu að veikjast einhvern tímann á lífsleiðinni. Alvarleg veikindi koma fólki oftast algjörlega í opna skjöldu. Á einu augnabliki umturnast líf fólks og það er ekki óalgengt að samhliða sæti áherslur, lífsskoðanir og framtíðarsýn fólks endurskoðun. Að ná bata er vegferð sem krefst fullrar athygli fólks. Það skiptir miklu máli að þegar við veikjumst höfum við fullt svigrúm til að setja alla okkar orku og tíma í að hlúa að okkur sjálfum og að ástvinum okkar. En þegar við veikjumst erum við sett í ákveðna stöðu innan samfélagsins, stöðu sjúklings, og þessi staða getur verið miserfið fyrir því að fólk er með misgott bakland og misgóða þekkingu á réttindum sínum og því hvernig þjónustukerfin okkar virka.
Alls konar ágreiningur getur sprottið upp innan heilbrigðiskerfisins, sem er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt en það er hins vegar óeðlilegt að sjúklingar eigi sér engan málsvara þegar ágreiningur kemur upp. Sjúklingar geta vissulega beint kvörtunum til embættis landlæknis ef þeir telja að á sér hafi verið brotið en landlæknir er hlutlaus úrskurðaraðili. Í slíkum málum þurfa sjúklingar því sjálfir að leita sér aðstoðar lögfræðinga sem getur verið mjög kostnaðarsamt og tímafrekt. Málsmeðferðin er einnig þung í vöfum og tekur langan tíma, enda hefur landlæknisembættið ótal önnur verkefni á sinni könnu. Sjúklingurinn er settur í þá stöðu að gæta sjálfur eigin hagsmuna og afleiðing þess er að fjöldi fólks fær ekki nauðsynlegt rými til að einbeita sér að bata þar sem það þarf að berjast fyrir réttindum sínum innan kerfisins, innan kerfis sem þau eru á sama tíma háð til að ná bata. Þetta setur fólk í ótrúlega óþægilega stöðu.
Hugmyndin um að stofna embætti umboðsmanns sjúklinga er ekki ný af nálinni, en henni var fyrst haldið á lofti af mannréttinda- og neytendasamtökum á sjöunda áratug síðustu aldar. Markmiðið var að hlúa að þeim sem minna mættu sín og þyrftu sérstaka aðstoð í samskiptum sínum við heilbrigðisstofnanir. Kvennalistinn lagði fram tillögur á 112., 116. og 117. löggjafarþingi um breytingar á þágildandi lögum um heilbrigðisþjónustu, um trúnaðarmenn sjúklinga og aðstandenda þeirra. Frumvarp Kvennalistans gekk út á að koma á fót trúnaðarmannakerfi líkt og tíðkast á vinnustöðum, þ.e. hver heilbrigðisstofnun hefði teymi trúnaðarmanna sem sjúklingar og aðstandendur þeirra gætu leitað til. Þrátt fyrir jákvæða umfjöllun um frumvarpið náði það ekki fram að ganga, því miður.
Þingfólk Alþýðuflokksins lagði svo fram þingsályktunartillögu á 120. löggjafarþingi um að fela ríkisstjórninni að undirbúa ráðningu umboðsmanna sjúklinga að öllum stærri sjúkrahúsum og í hverju heilsugæsluumdæmi sem myndu gæta hagsmuna og réttinda sjúklinga, sem m.a. byggðist á hugmynd Kvennalistans um trúnaðarmenn sjúklinga, þannig að hugmyndin hefur þróast í gegnum árin.
Í maí síðastliðnum var ráðið í stöðugildi talskonu sjúklinga á Landspítalanum. Talskonunni er ætlað að auka áherslu á fagmennsku í samskiptum við sjúklinga og aðstandendur, eiga samtal við sjúklingasamtök og halda áfram að bæta ferli umbóta í kjölfar athugasemda sjúklinga. Hlutverkið sem slíkt er ekki nýtt en fimm konur hafa gegnt þessari stöðu áður þó að stöðunni hafi hvorki verið búin eins formleg umgjörð né hafi verið um fullt starf að ræða. Það er fagnaðarefni að Landspítalinn leggi frekari áherslu á upplifun notenda þjónustunnar en það verður að hafa í huga að talskonan er eftir sem áður starfsmaður spítalans og aðeins Landspítalans. Embætti umboðsmanns sjúklinga væri sjálfstætt og óháð öðrum einingum innan heilbrigðiskerfisins og gæti þjónustað alla notendur heilbrigðisþjónustu á landinu, hjá hinu opinbera og hjá einkaaðilum.
Hlutverk umboðsmanns sjúklinga samkvæmt þessari tillögu sem ég er að kynna hér, sem ég er að mæla fyrir nú, er að vera opinber talsmaður sjúklinga og vinna að því að veitendur heilbrigðisþjónustu taki fullt tillit til réttinda, þarfa og hagsmuna þeirra, að fylgjast með því að sjúklingum sé ekki mismunað og jafnræðis sé gætt, að taka við kvörtunum, meta þær og aðstoða sjúklinga við að koma þeim á framfæri og að leysa samskiptavanda og deilumál. Umboðsmaður verður tengiliður sjúklings og aðstandenda hans við starfsfólk og stjórnendur heilbrigðisstofnana hvað varðar kvartanir um þjónustu og hugsanlega lögsókn. Umboðsmaður getur bæði tekið mál til meðferðar eftir kvörtun frá sjúklingi eða að eigin frumkvæði.
Umboðsmanni er líka ætlað að hafa frumkvæði að stefnumarkandi umræðu í samfélaginu um málefni sjúklinga. Hann á að miðla upplýsingum og veita þjónustu við sjúklinga og aðstandendur þeirra ásamt því að vera til aðstoðar og leiðbeiningar varðandi réttindi þeirra. Hann á að gefa markvisst út fræðandi og leiðbeinandi efni fyrir sjúklinga og aðstandendur. Hann á að stuðla að bættum starfsháttum í heilbrigðisþjónustu þannig að sjúklingar upplifi minni streitu, skjótari bata og fái aðstoð frá fyrstu viðkomu innan heilbrigðiskerfisins þar til meðferð lýkur.
Forseti. Þetta er í þriðja sinn sem ég legg þetta mál fram og mæli fyrir því hér. Á síðasta þingi komu til þingsins 15 umsagnir um málið sem eru allar jákvæðar, forseti. Þær fagna allar þessari þingsályktunartillögu. Í umsögnum er talað um stofnun embættis umboðsmanns sjúklinga sem mikilvægt framfaraskref. Mig langar aðeins að fjalla um þær umsagnir sem hafa skilað sér til þingsins, umsagnir sem mér finnst mikilvægt að við tökum tillit til í allri umræðu og ákvarðanatöku um afdrif þessa máls, því að það hlýtur að skipta máli að það er ákall eftir þessu, ekki bara hjá notendum þjónustunnar heldur líka hjá veitendum þjónustunnar. Í umsögn Krafts, sem er stuðningsfélag fyrir ungt fólk sem hefur greinst með krabbamein og aðstandendur, er að finna mikilvæga innsýn í reynsluheim notenda heilbrigðiskerfisins og mig langar aðeins til að lesa upp úr umsögninni, með leyfi forseta:
„Ung kona sem greindist með brjóstakrabbamein var ranglega greind og fékk því ekki viðeigandi meðferð fyrr en allt of seint. Þegar það kom upp var sjúkdómurinn of langt genginn til að hægt væri að bjarga lífi hennar. Hún hafði sjálf ekki burði með langt gengið krabbamein til þess að aðhafast nokkuð enn eftir andlátið vantaði fjölskyldu hennar ráðgjöf hvernig þau gætu snúið sér þar sem um dýrkeypt mistök var að ræða sem kostuðu hana lífið.
Önnur ung félagskona Krafts greind með heilaæxli hafði samband við félagið þar sem hún var ráðalaus. Læknirinn hennar hafði neitað henni um myndgreiningu á höfði eftir ítrekaðar óskir hennar um að framkvæma viðeigandi rannsókn þar sem hún var byrjuð að sýna einkenni sem upphaflega komu fram við greiningu á sjúkdómi hennar. Læknir stúlkunnar var yfirlæknir og því átti hún í miklum erfiðleikum með að fá álit annars læknis innan spítalans þar sem þeir störfuðu allir undir viðkomandi lækni. Þegar hún leitaði til spítalans höfðu þeir engin svör fyrir hana og var hún í mikilli angist og ráðalaus hvernig hún ætti að snúa sér í þessu.
Umboðsmaður sjúklinga hefði í þessum tilvikum verið nauðsynlegur. Kraftur hefur fjölmörg önnur dæmi þar sem félagsmenn okkar hefðu nauðsynlega þurft á umboðsmanni sjúklinga að halda. Þar sem hann gæti bent heilbrigðisyfirvöldum á sjónarmið sjúklingsins, miðlað málum, og lagt til úrbætur í heilbrigðiskerfinu með hagsmuni sjúklinganna að leiðarljósi.“
Í umsögn Umhyggju, félags langveikra barna, stendur, með leyfi forseta:
„Mikil sérstaða er hér á Íslandi hvað varðar stærð heilbrigðiskerfisins. Við erum einungis með einn spítala á höfuðborgarsvæðinu og fáa sérfræðinga í hverju fagi. Foreldrar eru því í enn viðkvæmri stöðu hér á landi samanborið við önnur lönd. Séu foreldrar ósammála þeim sérfræðingi sem annast barn þeirra í veikindum þess, er oft á tíðum ómögulegt að fá annað álit, þar sem einungis einn sérfræðingur er til staðar. Foreldrar veigra sér því gjarnan við að láta óánægju sína í ljós vegna ótta við að vera stimpluð sem „erfið“ og hafa áhyggjur af því að láti þau sína skoðun í ljós muni það ef til vill bitna á þjónustunni við barnið.“
Í umsögn Samtaka aðstandenda og fíknisjúkra segir, með leyfi forseta:
„Fíknisjúklingum er synjað um verkjalyf og svefnlyf vegna þess að þeir eru „flaggaðir“ í kerfinu þegar staðreyndin er sú að þó þú sért fíknisjúklingur þá getur viðkomandi líka átt erfitt með svefn og fengið verki. Og því til rökstuðnings ætlum við nefna nokkur af þeim ótal dæmum sem við höfum.
Virkur fíknisjúklingur sem fór í stóra aðgerð og bað um verkjalyf með sér heim, fékk þau svör að hann væri virkur fíkniefnasjúklingur og fengi einungis paratabs og íbúfen. Annað dæmi var fíknisjúklingur í bata og átti erfitt með svefn og hann fékk neitun af sömu ástæðu og sá sem fór í aðgerðina. Síðasta dæmið var sjúklingur í fráhvörfum og fékk ekki lyf vegna þeirra og gífurlegs vanlíðan, þrátt fyrir að leita til læknis. Það er ekki aðgangur að niðurtröppunarlyfjum vilji sjúklingur hætta neyslu og komast í bata en vitað er að fráhvörf er lífshættulegt ástand.“
Forseti. Eins og ég sagði áðan eru það ekki einungis notendur heilbrigðisþjónustu sem telja umboðsmann sjúklinga nauðsynlega viðbót til að standa vörð um réttindi sjúklinga og þannig efla heilbrigðisþjónustu. Það eru líka veitendur heilbrigðisþjónustu sem senda umsagnir og hvetja til þess að tillaga þessi verði samþykkt. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga bendir á í sinni umsögn:
„Fram kemur í lögum um réttindi sjúklinga að sjúklingur eigi rétt á fullkomnustu heilbrigðisþjónustu sem völ er á að veita á hverjum tíma. Hins vegar geta komið upp deilumál eða önnur ágreiningsatriði innan heilbrigðiskerfisins þar sem sjúklingar geta verið í viðkvæmri stöðu. Því er rík þörf á að stofna sérstakt embætti umboðsmanns sjúklinga sem gætir hagsmuna þeirra eins og fram kemur í greinargerð þingsályktunartillögunnar.“
Stofnun umboðsmanns sjúklinga fæli í sér gríðarlega mikið framfaraskref í þjónustu við sjúklinga og aðra notendur heilbrigðiskerfisins. Umsagnaraðilar eru einhljóma um að vöntun sé á embættinu og flest telja að sjúklingar séu í eðli sínu viðkvæmur hópur, sérstaklega þegar um er að ræða sjúklinga sem eru börn eða glíma við fjölþættan vanda. Mannréttindaskrifstofa Íslands bendir sérstaklega á í umsögn sinni um málið að erfitt hafi reynst fyrir ákveðna hópa sjúklinga að fá aðgang að einstaklingsmiðaðri og þverfaglegri heilbrigðisþjónustu. Þeir hópar sem eru illa í stakk búnir til að berjast fyrir hagsmunum sínum og réttindum hafa engan talsmann sem talar máli þeirra gagnvart heilbrigðiskerfinu. Þörfin fyrir umboðsmann sjúklinga er brýn. Við fáum reglulega, allt of reglulega, fréttir af fólki sem heilbrigðiskerfið hefur brugðist, fólki sem ætti að hafa svigrúm til að nota alla sína orku til að græða sár, til að hlúa að sjálfu sér á erfiðum tímum, til að ná heilsu, í stað þess að setja ómælda orku og jafnvel stórar fjárhæðir til þess að knýja fram réttlæti.
Forseti. Það er mín einlæga von að þessi þingsályktunartillaga nái nú loksins fram að ganga.