155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

bann við veðmálastarfsemi í tengslum við íþróttakappleiki ósjálfráða ungmenna og skipulagningu hennar.

183. mál
[15:32]
Horfa

Flm. (Steinunn Þóra Árnadóttir) (Vg):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir tillögu til þingsályktunar um bann við veðmálastarfsemi í tengslum við íþróttakeppni ósjálfráða ungmenna og skipulagningu hennar. Með leyfi forseta vil ég fara með ályktunartextann en hann hljómar svo:

„Alþingi ályktar að fela dómsmálaráðherra að undirbúa frumvarp sem kveði á um að veðmálastarfsemi í tengslum við íþróttakappleiki ósjálfráða ungmenna og skipulagning hennar verði bönnuð og gerð refsiverð. Ráðherra leggi frumvarpið fram eigi síðar en á vorþingi 2025.“

Flutningsmenn með mér á þessari tillögu eru hv. þingmenn Orri Páll Jóhannsson, Líneik Anna Sævarsdóttir, Þórunn Sveinbjarnardóttir, Þórarinn Ingi Pétursson og Bjarni Jónsson.

Það er nú í annað sinn sem þessi tillaga er lögð fram en hún var lögð fram fyrst í fyrravor en ekki gafst tími eða tóm til að mæla fyrir henni. Með henni er kallað eftir því að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp sem kveður skýrt á um að veðlánastarfsemi og skipulagning hennar verði gerð ólögleg í tengslum við íþróttakeppni í flokkum þar sem iðkendur hafa ekki náð 18 ára aldri að jafnaði og að það sé gert refsivert. Staðan er nefnilega sú að veðmál um slíka kappleiki eiga sér nú þegar stað í talsverðum mæli og eru vaxandi vandamál að mati þeirra sem hvað best þekkja til. Veðlánastarfsemi í tengslum við íþróttakappleiki á sér langa sögu, jafnt lögleg sem ólögleg. Á Íslandi hefur íþróttahreyfingin haft einkaleyfi til reksturs íþróttagetrauna um áratugaskeið en sérlög hafa verið í gildi um hestakappreiðar og veðmálastarfsemi í tengslum við kappróðra á sjómannadaginn til stuðnings hestamannafélögum og dvalarheimili aldraðra sjómanna. Á síðustu árum hefur veðmálahegðun Íslendinga hins vegar tekið miklum breytingum. Fjöldi erlendra vefsíðna gefur Íslendingum nú færi á að veðja á allt milli himins og jarðar en þó fyrst og fremst íþróttaúrslit. Sumar þessara síðna ganga mjög langt í að markaðssetja sig sérstaklega gagnvart íslenskum þátttakendum, svo sem með íslensku viðmóti og auglýsingum á íslensku þótt starfsemin sé í raun ólögleg hér á landi.

Í skýrslu starfshóps um happdrættismál sem skilað var til dómsmálaráðherra í desember 2022 kemur fram að ætlað er að Íslendingar eyði á bilinu 10,5–12 milljörðum kr. á erlendum veðmálasíðum á ári hverju. Það eru engar smá upphæðir. Meðal þess sem hægt er að veðja um á þessum erlendu síðum eru íslenskir íþróttakappleikir, ekki hvað síst knattspyrnuleikir. Ástæðan er sú að íslenska knattspyrnutímabilið fer að mestu fram yfir hásumarið þegar flestar aðrar deildarkeppnir eru í fríi. Af því leiðir að erlendir aðilar veðja fjárhæðum á íslenskar íþróttir sem eru langt umfram það sem vænta mætti miðað við íbúafjölda hér á landi og samningar við erlend veðmálafyrirtæki eru því drjúg tekjulind fyrir knattspyrnuhreyfinguna. Ég tel ekki hægt að líta fram hjá því að veðlánastarfsemi á sér ýmsar skuggahliðar. Spilafíkn er þekktur vandi og hafa sérfræðingar áætlað að á Norðurlöndum glími um 3% mannfjöldans við fjárhættuspilavanda af einhverjum toga en ekki nema lítill hluti þess hóps leitar sér aðstoðar. Spilavandi tengdur íþróttaveðmálum er talinn vera vaxandi vandamál og ungir karlmenn eru líklegri en aðrir til að glíma við þann vanda.

Með þessari tillögu sem ég mæli fyrir hér er spjótum beint að einum afmörkuðum anga ólöglegrar starfsemi, þ.e. veðmálastarfsemi í flokkum þar sem iðkendur hafi ekki náð 18 ára aldri að jafnaði. Á erlendum vefsíðum er mögulegt að veðja á viðureignir í 2. og 3. flokki hér á landi og þar er um að ræða keppni barna sem eru niður í allt að 14 ára að aldri. Ýmsar hættur felast í þessu. Í fyrsta lagi er augljóst að með því að bjóða upp á veðmál með úrslit unglingakappleikja er verið að höfða til ungmenna að leggja undir fjármuni á viðureignir vina sinna og kunningja. Það kann að ýta undir þátttöku í fjárhættuspilum í gegnum veðmál og að einstaklingur þrói með sér spilafíkn. Í öðru lagi getur þessi staða skapað freistnivanda fyrir óharðnaða unglinga þegar kemur að hagræðingu úrslita eða jafnvel sett þá í hættulega stöðu gagnvart aðilum sem vilja hafa áhrif á niðurstöður leikja en oft eru háar fjárhæðir undir í veðmálum erlendis á leiki íslenskra unglingaliða. Víða í nágrannalöndum okkar gilda sérstök bönn við veðmálum á kappleiki barna. Í Bretlandi er til að mynda strangt bann við að bjóða upp á veðmál á kappleiki í flokkum yngri en 18 ára og árið 2021 var sænskt veðmálafyrirtæki sektað um 1 milljón sænskra króna fyrir að hafa boðið upp á veðmál um kappleik þar sem flestallir leikmenn voru undir 18 ára aldri þótt um meistaraflokksleik hafi þar verið að ræða.

Frú forseti. Með þessari tillögu er sem sagt kallað eftir því að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp og verði það samþykkt er það auðvitað ályktun Alþingis að dómsmálaráðherra leggi fram frumvarp sem kveður skýrt á um það að veðmálastarfsemi og skipulagning hennar sé ólögleg í tengslum við íþróttakappleiki hér á landi í flokkum þar sem iðkendur hafa ekki náð 18 ára aldri að jafnaði með það að markmiði að vernda ungmenni fyrir þeim hættum sem starfseminni kunna að fylgja. Ljóst er að þar sem veðlánasíður þær sem hér um ræðir eru erlendar er lögsaga íslenskra yfirvalda í málum þeirra óljós. Eigi að síður má ætla að erlendir aðilar yrðu hikandi við að brjóta gegn fortakslausu banni við því að bjóða upp á veðmál um íslenska unglingakappleiki. Að auki tíðkast hjá mörgum veðmálafyrirtækjum og tengdum úrslitasíðum að hafa útsendara sína á kappleikjum til að skrá upplýsingar í rauntíma, til að endurskoða stuðla og gera þetta meira spennandi en slíkt yrði jafnframt ólöglegt með lagasetningunni sem hér er verið að kalla eftir.

Frú forseti. Mér og flutningsmönnum og vonandi fleirum finnst þetta borðleggjandi mál. Það er eitthvað mjög óeðlilegt við það í mínum huga að hægt sé að veðja á íþróttakeppni þar sem unglingar eru að keppa. Það má alveg færa rök fyrir því að hafa þá skoðun að það sé óeðlilegt að hægt sé að veðja á íþróttakappleiki yfir höfuð en það er umræða sem ég ætla að geyma til annars og betri tíma. Mér finnast rökin m.a. um það að þetta geti haft freistnivanda fyrir ungmenni um að keppa ekki bara eins íþróttamannslega og þeir geta í sínum leikjum heldur geti hreinlega verið fjárhagslegur hvati til að hagræða úrslitum, vera til að mynda stór og veigamikil, að ekki sé minnst á að þetta geti ýtt undir fíknivanda þegar kemur að fjárhættuspilum. Ég vona að þetta mál hljóti góðar viðtökur og legg til að því verði vísað til allsherjar- og menntamálanefndar og 2. umræðu.