almannatryggingar og endurskoðun örorkulífeyriskerfis almannatrygginga.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um almannatryggingar og lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, eingreiðsla. Þingflokkur Flokks fólksins eru flutningsmenn þessa frumvarps.
I. kafli, breyting á lögum um almannatryggingar, nr. 100/2007, 1. gr.:
Á eftir 23. gr. laganna kemur ný grein, 23. gr. a, sem orðast svo:
Þeir einstaklingar sem eiga rétt á greiðslu ellilífeyris skv. 17. gr. og hafa óskertan ellilífeyri almannatrygginga skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. eigi síðar en 1. desember, ár hvert. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.
2. gr.:
Á eftir 31. gr. laganna kemur ný grein, 31. gr. a, sem orðast svo:
Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., sbr. 26. gr., eða endurhæfingarlífeyris skv. 7. gr. laga um félagslega aðstoð, nr. 99/2007, skulu fá eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. eigi síðar en 1. desember ár hvert. Hafi lífeyrisþegi fengið greitt hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.
II. kafli, breyting á lögum um breytingu á ýmsum lögum vegna endurskoðunar örorkulífeyriskerfis almannatrygginga, nr. 104/2024, 3. gr.:
Við 3. gr. laganna bætist nýr stafliður, i-liður (31. gr. a), sem orðast svo:
Þeir sem eiga rétt á greiðslu örorkulífeyris skv. 24. gr., hlutaörorkulífeyri skv. 25. gr. eða sjúkra- og endurhæfingargreiðslum skv. 27. gr. skulu fá greidda eingreiðslu að fjárhæð 70.364 kr. eigi síðar en 1. desember ár hvert. Hafi greiðsluþegi fengið greitt hluta úr ári skal eingreiðslan vera í hlutfalli við greiðsluréttindi hans á árinu. Eingreiðsla þessi skal ekki teljast til tekna greiðsluþega og ekki leiða til skerðingar annarra greiðslna.
4. gr.:
Lög þessi öðlast þegar gildi.
Í greinargerð með frumvarpinu segir m.a., með leyfi forseta:
„Undanfarin ár hefur Alþingi samþykkt eingreiðslu til örorkulífeyrisþega skömmu fyrir lok haustþings (hinn svokallaði jólabónus). Þessi eingreiðsla hefur reynst öryrkjum kærkomin en það verklag sem Alþingi hefur viðhaft hefur leitt til mikillar óvissu hjá öryrkjum um hvort eingreiðslan verði greidd hverju sinni, hve há eingreiðslan verður og jafnframt hvenær hún muni berast. Flutningsmenn frumvarps þessa telja mikilvægt að festa í sessi eingreiðsluna til að tryggja til frambúðar þá kjarabót sem í henni felst og jafnframt draga úr þeirri miklu óvissu sem fylgir því verklagi sem nú er viðhaft. Jafnframt er lagt til að sams konar eingreiðsla verði greidd til þeirra ellilífeyrisþega sem hafa svo lágar tekjur að þeir fá greiddan óskertan ellilífeyri. Lagt er til að eingreiðslan verði 70.364 kr. árið 2024, eða 6% hærri en fjárhæð eingreiðslunnar árið 2023, sem samsvarar spá Hagstofunnar um hækkanir á vísitölu neysluverðs milli ára. Verði frumvarpið að lögum mun fjárhæðin svo taka árlegum breytingum ásamt öðrum fjárhæðum laganna eins og mælt er fyrir um í 62. gr. þeirra.
Vegna þess að búið er að samþykkja umfangsmiklar breytingar á lögum um almannatryggingar, sem munu taka gildi haustið 2025, er jafnframt nauðsynlegt að gera breytingar á þeim breytingalögum svo að eingreiðslan gildi áfram eftir gildistöku þeirra. Er því lögð til breyting þess efnis í 3. gr. frumvarpsins.“
Frú forseti. Við höfum séð það núna í allnokkur ár að komið hefur verið til móts við öryrkja í desember ár hvert undanfarin þrjú ár að mig minnir, frekar en fjögur. Hefur í raun enginn flokkur haft hærra um það og nauðsyn þess að við greiðum þennan jólabónus en Flokkur fólksins, flokkurinn sem hefur sett sig sem skjöld og hlíf fyrir öryrkja og eldra fólk og alla þá sem búa við lökustu kjörin í samfélaginu og hafa verið skildir út undan, ekki fengið að taka þátt í góðærinu sem áður var heldur hafa alltaf verið settir hjá garði, ekki bara stundum heldur alltaf.
Ef Flokkur fólksins væri við stjórnvölinn núna myndum við hreinlega koma á 13. mánuðinum til handa almannatryggingaþegum sem hafa ekkert annað úr að moða en greiðslur frá Tryggingastofnun. Það væri bragur á því, þegar búið er að halda fólki í sárri fátækt og múra það inni í fátæktargildru sem engin leið er að brjótast út úr, a.m.k. að rétta því þá huggun sem fælist í því að greiða því t.d. 13. mánuðinn í desember eins og sumir aðrir fá í þessu samfélagi. Þó er huggun harmi gegn ef við getum fest í sessi þennan svokallaða jólabónus fyrir þessa einstaklinga, þetta fólk sem við í Flokki fólksins erum að taka utan um og viljum hjálpa af öllum mætti og af öllu hjarta, þannig að þessi greiðsla sé trygg og örugg og við séum með hana tímasetta þannig að það fari ekkert á milli mála. Í desember ár hvert síðan þessi jólabónus var settur á og byrjað var að greiða hann fæ ég hundruð skilaboða frá einstaklingum sem spyrja: Verður jólabónusinn? Hvenær fæ ég hann borgaðan? Verð ég búinn að fá hann fyrir jól eða verður það dregið þangað til milli jóla og nýárs? Mun ég geta notað mér þetta núna til þess að gera okkur dagamun um jólin eða ekki? Þetta er ólíðandi. Það er algerlega ólíðandi og okkur til minnkunar að geta ekki komið betur til móts við fólkið okkar en raun ber vitni.
Nú er það svo að þessi svokallaði jólabónus hefur verið rökstuddur af stjórnvöldum með því að beðið hefði verið eftir því að þessi heildstæða almannatryggingalöggjöf næði fram að ganga, sem hefur verið boðuð hér meira og minna frá því að ég kom á Alþingi Íslendinga fyrir sjö árum síðan. Nú hefur þessi almannatryggingalöggjöf litið dagsins ljós að því leyti til að hún átti að taka gildi 1. janúar næstkomandi þar sem átti að setja ríflega 10 milljarða kr. í það að hækka lágmarksgreiðslur til öryrkja, en í staðinn er búið að fresta þeim um níu mánuði, til 1. september 2025, af því að gert er ráð fyrir því í fjármálaáætlun að þessir peningar verði nýttir í það að koma til móts við og uppfylla kjarapakkann sem ríkisstjórnin kom með inn í kjaraviðræðurnar í vor sem leið. Það er í rauninni sárara en tárum taki að horfa upp á hvernig alltaf er hægt að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur. Hvers vegna skyldi því vera frestað um níu mánuði að koma almannatryggingakerfinu í gagnið og a.m.k. þessum lágmarksgreiðslum? Flokkur fólksins, einn flokka á Alþingi Íslendinga, var á eldrauðum takka þegar þetta almannatryggingafrumvarp var borið undir atkvæði, ekki einungis vegna þess að við mótmæltum þessari frestun á gildistökunni hvað lýtur að hækkun á lágmarksframfærslu öryrkja, heldur mótmæltum við því harðlega að nokkurn tíma muni ná fram að ganga það starfsgetumat sem þetta almannatryggingakerfi er að boða. Það er eitt að bjóða upp á starfsgetumat, að einstaklingur fái metna sína starfsgetu með tilliti til þess að hann fái starf við hæfi. Annað er það hvernig staðreyndirnar tala sínu máli, þar sem einstaklingurinn verður metinn til starfsgetu hvort sem honum líkar betur eða verr, þrátt fyrir að enga vinnu sé fyrir hann að fá. Þar er algerlega blint í sjóinn rennt. Engin vinna og enginn undirbúningur hefur verið að því að þessir einstaklingar geti fengið 30% eða 50% stöðugildi og gengið að því sem vísu, þegar búið verður að skerða greiðslur frá Tryggingastofnun með tilliti til þeirrar starfsgetu sem þeir voru metnir til, að þeir geti farið á vinnumarkaðinn og sótt þessar krónur. Það er alrangt og ömurlegt að horfa upp á það hvernig reynt er að lyfta sér upp á nýju almannatryggingafrumvarpi með því að kasta ryki í augun á fólki sem býst við einhverju frábæru, sem í rauninni er ekki frábært nema að einu leyti. Því var frestað til 1. september árið 2025 og það er hækkun á lágmarksframfærslu til öryrkja.
Þessi ríkisstjórn hefur líka afrekað það að ráðast að vernduðum vinnustöðum. Búið er að segja upp öllu fólkinu á Múlalundi. Fólk hringir í mig grátandi og hefur skrifað marga pósta sem ég er náttúrlega ekki að fara að lesa upp hér. Hvað verður um mig? Hvar á ég að fá vinnu? Jú, það á að útvega ykkur vinnu, elskulega fólk, í sirka tvö ár en hversu fötluð sem þið eruð og hversu miklar sérþarfir sem þið hafið þá er meginmarkmiðið að koma ykkur á almennan vinnumarkað. Hver vill ráða fólk með sérþarfir, mjög fatlað fólk sem þarf í rauninni algerlega á sérhæfðri aðstoð að halda, á almennum vinnumarkaði? Og hvers vegna er verið að bjóða fötluðu fólki upp á svona meðferð þegar það hefur jafnvel verið að vinna þarna í góðri trú árum saman, liðið vel í samskiptum við fólkið sitt og á þeim vinnustöðum sem það hefur unnið á?
Eitt af fáum verkum sem þessi ríkisstjórn, þessi félagsmálaráðherra og þau sem eru í brúnni hafa verið að vinna og ekki haft verkkvíða fyrir að hrinda í framkvæmd er að ráðast að vernduðum vinnustöðum og skila því til einstaklinganna að það eigi að koma þeim á almenna vinnumarkaðinn. Ekki nóg með það, heldur er rökstuðningurinn að samningur Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks kveði á um það. Því er ekki bara verið að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og ráðast að fólki sem er á vernduðum vinnustöðum, heldur er verið að afbaka samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks, rangtúlka samninginn til þess að réttlæta þessa aðför að fólki með sértækar stuðningsþarfir.
Við í Flokki fólksins höfum líka ítrekað mælt fyrir og reynt að berjast fyrir því, þegar jólabónusinn sem hér er verið að ræða kom til framkvæmda nokkur undanfarin ár, að tekið verði utan um eldra fólk sem hefur það síst betra og fær einhverjum krónum minna í umslagið sitt frá Tryggingastofnun en öryrkjarnir. En nei, það kostar of mikið. Það kostar sennilega 100 milljónir. Við skulum frekar setja 4 milljarða á ári í vopnakaup eða ég veit ekki hvað marga milljarða til að bjarga loftslaginu á jörðinni, halda snobbpartí í Hörpunni, eða nota 3 milljarða í andlitslyftingu Svörtulofta, kaupa ný húsgögn og nýjar innréttingar. Ég er bara að telja upp lítilræði en eins og hér hefur verið er fjármunum forgangsraðað í allt annað en fólkið sem þarf á þeim að halda á, Íslendinga sem þurfa á þessari aðstoð að halda. Fjárheimildir eru settar í allt annað, flottræfilshátt, snobbpartí og athyglissýki sem kostað hefur íslenska skattgreiðendur milljarða á milljarða ofan, en það var ekki hægt að samþykkja 100 milljónir til að greiða 2.100 ellilífeyrisþegum sem eru að fá útborgað undir 300.000 kr. á mánuði.
Með þessu frumvarpi erum við að reyna að tryggja jólabónusinn, þrátt fyrir að geta ekki boðið upp á 13. mánuðinn hjá Tryggingastofnun sem er draumur okkar í Flokki fólksins, og erum búin að framreikna hann eins og hann var árið 2023. Nú er hann réttar 70.000 kr. og við erum að reyna að tryggja að hann verði greiddur út 1. desember og það verði vitað, viðurkennt og samþykkt á Alþingi Íslendinga. En viti menn, frú forseti, að það kæmi mér ekki á óvart að þetta þingmannamál, þetta gæskumál, myndi hafna í ruslinu sem og öll önnur mál Flokks fólksins og flestra sem eru í stjórnarandstöðu og berjast fyrir því að koma málefnum sínum og hugðarefnum í lýðræðislega meðferð á Alþingi Íslendinga. Það risi svo upp úr öskunni daginn fyrir Þorláksmessu þar sem væri sagt: Jú, víst skulið þið fá jólabónus, öryrkjar, vegna þess að við erum búin að fresta hækkun á greiðslum til ykkar af því að þið eigið að borga kjarapakkann sem við gerðum fyrir verkalýðshreyfinguna í vor. Jú, víst verðum við að greiða ykkur jólabónusinn, en þið eldra fólk megið halda áfram að hokra. Ég er mest hrædd um að það sé það sem komi upp úr kassanum þegar á hólminn verður komið. Það er a.m.k. sú reynsla sem ég hef haft af störfum mínum á Alþingi Íslendinga.
Eina lýðræðið sem við eigum í þessu svokallaða lýðræðissamfélagi sem Ísland er, kennt við réttarríki sem við viljum vera, lýðræðislegt, er þegar þið farið í kjörklefann og merkið við valdhafana eins og þið viljið hafa þá. Eftir það ríkir algjört ráðherraræði, algjört einræði ríkisstjórnarflokkanna, þar sem störf og verk stjórnarandstöðunnar sem hún reynir að vinna eru gjörsamlega fótum troðin og fá nánast aldrei, undantekningarlítið, að koma fyrir Alþingi Íslendinga í þinglega meðferð og fá ekki lýðræðislegar niðurstöður með atkvæðagreiðslum í þingsal eftir tvær eða þrjár umræður nefnda, hvort heldur sem um þingsályktun eða frumvörp er að ræða.
En það væri bragur að því ef við gætum einhvern tíma sent þau skilaboð til þeirra sem þurfa mest á hjálp okkar að halda: Þið eruð trygg með þennan jólabónus og munuð fá hann greiddan 1. desember. Í það minnsta er þetta eitt af aðalmálum Flokks fólksins sem við setjum nú á dagskrá, eitt af okkar forgangsmálum. Það vantar því ekki viljann hjá okkur til að halda áfram að berjast. Og það var nöturlegt að hlýða á það í útvarpi á dögunum þegar fulltrúi ónefnds stjórnmálaflokks kom fram og sagði að hún og hennar flokkur væru þau einu sem væru að berjast fyrir réttlætinu og berjast gegn fátækt á Íslandi — þvílík hræsni. Og þegar hún var spurð að því hvort Flokkur fólksins væri ekki einmitt búinn að staðsetja sig þar og hefði verið þar allan tímann: Jú, en þau vita ekkert hvernig þau ætla að fara að þessu. Við sem sagt kunnum ekkert á það, með 71 þingmannamál og búin að vera sjö ár á Alþingi Íslendinga og höfum aldrei gert neitt annað en talað nákvæmlega sama tungumálið og gengið í takt, allur þingflokkurinn, alla tíð fyrir þá sem þessi flokkur var stofnaður eingöngu til þess að verja, vernda og bæta kjör og hag. Því fyrr sem fólkið okkar áttar sig á því hverjir raunverulega eru bjargvættir þess, sem geta breytt öllu í lífi þess til hins betra — því fyrr sem þið áttið ykkur á því að það er Flokkur fólksins, því fyrr munum við eignast betra líf.
(Gripið fram í: Heyr, heyr.)