155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

jöfn staða og jafn réttur kynjanna og stjórnsýsla jafnréttismála.

32. mál
[16:27]
Horfa

Flm. (Diljá Mist Einarsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna, nr. 150/2020, og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála, nr. 151/2020. Meðflutningsmenn á þessu máli eru Sjálfstæðismennirnir og hv. þingmenn Njáll Trausti Friðbertsson, Hildur Sverrisdóttir, Berglind Ósk Guðmundsdóttir, Óli Björn Kárason, Vilhjálmur Árnason og Teitur Björn Einarsson. Fyrir bráðum tveimur árum síðan lagði ég fram fyrirspurn til forsætisráðherra um kynbundinn launamun og jafnlaunavottun. Í svari ráðherra kemur fram að stöðugt hafi dregið úr kynbundnum launamun á undanförnum árum og áratugum. Hins vegar mælist ekki marktækur munur á kynbundnum launamun hjá aðilum sem hafa innleitt svokallaðan jafnlaunastaðal og fengið vottun og hinum sem hafa ekki gert það. Í svari forsætisráðherra kemur einnig fram að ekki séu til upplýsingar um kostnað, aðallega við jafnlaunavottun, en ekki var lagt mat á kostnað við lögfestingu hennar. Gera má ráð fyrir að kostnaðurinn sé umtalsverður enda verji aðilar bæði tíma og fjármunum í ferlið, m.a. vegna sérfræðiþjónustu og hugbúnaðarkaupa. Í könnun sem Samtök atvinnulífsins létu framkvæma meðal félagsmanna sinna árið 2021 kom fram að kostnaður fyrirtækja sem höfðu farið í gegnum vottunarferlið næmi að meðaltali um 16 millj. kr. Því var áætlað að heildarkostnaður þeirra 1.200 fyrirtækja sem var gert að ljúka vottuninni næmi um 20 milljörðum. Við þetta bætast síðan fjármunir sem þarf til að viðhalda vottuninni.

En hvaðan kemur þetta fyrirbæri, jafnlaunavottun? Skylda atvinnulífsins og stofnana til jafnlaunavottunar var forgangsmál Viðreisnar á þeim tíma þegar flokkurinn tók þátt í myndun ríkisstjórnar 2016. Lögfesting þessa baráttumáls Viðreisnar er einsdæmi á heimsvísu. Ekkert annað land í heiminum hefur lögfest viðlíka skyldu og markmiðið var sannarlega göfugt, að vinna gegn kynbundnum launamun. Kostnaður fyrir atvinnulífið var talinn aukaatriði, enda var ekki lagt mat á kostnað við lögfestingu jafnlaunavottunar. En nú sýna mælingar okkur það að munurinn er ekki marktækur og kostnaðurinn og umstangið er gríðarlegt. Við höfum lögfest hér óþarfa álögur og byrðar á íslenskt atvinnulíf sem fyrirfinnast hreinlega ekki á samanburðarmörkuðum. Reyndar hefur reynslan svo sýnt okkur annað varðandi þetta verkfæri Viðreisnar. Við heyrðum nýleg dæmi um konur, um kvenlækna á Landspítalanum sem höfðu barist fyrir því árum saman að fá leiðréttan kynbundinn launamun en fengu ítrekað svar um það að Landspítalinn hefði þennan stimpil, jafnlaunavottun frá ríkinu, og því gæti ekki verið um neitt slíkt að ræða. Árum síðar eftir langa baráttu þessara kvenlækna kemur síðan í ljós að þeim hafi verið mismunað á grundvelli kyns. Því getum við ályktað sem svo að jafnlaunavottun skili bara ekki marktækum árangri. Það er ekki eini vankanturinn heldur er hún skaðvaldur sem gerir fyrirtækjum og stofnunum kleift að mismuna starfsfólki samkvæmt uppáskrift frá ríkinu. Falskt öryggi fyrir jöfnum launum kallaði formaður Læknafélags Íslands þetta.

Þar sem flutningsmenn þessa frumvarps telja að það sé gríðarlega mikilvægt að íslenskt atvinnulíf sé samkeppnishæft leggjum við til þá breytingu að þessi dyggðaskreyting, jafnlaunavottun, verði valkvæð. Þá geta þau fyrirtæki og stofnanir sem það vilja puntað sig með þessum titli frá ríkisstofnun en aðrir geta losnað undan kostnaðinum og fyrirhöfn við vottuninni.

Virðulegi forseti. Við Sjálfstæðismenn teljum að jafnlaunavottun sé dýr og íþyngjandi kvöð fyrir fyrirtæki og stofnanir og í besta falli leiki vafi á að nokkur árangur sé af henni. Mögulega vekur vottunin einhverja til umhugsunar um jafnrétti á launamarkaði. Þeim áhrifum hlýtur að vera hægt að ná fram með því að vottunin sé lögfest en valkvætt verkfæri. Við hv. þingmenn vil ég segja að það er góður eiginleiki að geta skipt um skoðun og að taka aðra ákvörðun á grundvelli nýrra upplýsinga og reynslu. Að svo búnu legg ég til að málið gangi að lokinni 1. umræðu til hv. velferðarnefndar.