155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

neyðargeðheilbrigðisteymi og fræðsla viðbragðsaðila.

235. mál
[16:33]
Horfa

Flm. (Þórhildur Sunna Ævarsdóttir) (P):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um að sett verði á fót neyðargeðheilbrigðisteymi til að sinna útköllum úr neyðarnúmerinu 112 í þeim tilvikum þar sem grunur leikur á að einstaklingur eða einstaklingar á vettvangi stríði við geðrænan vanda eða vímuefnavanda. Sömuleiðis leggjum við til að starfsfólk Neyðarlínunnar, sem og lögregla, fái viðeigandi fræðslu til að meta í störfum sínum hvort þörf sé á aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki í útköllum. Fyrsti flutningsmaður tillögunnar er hv. varaþingmaður okkar Pírata, sálfræðingurinn Eva Sjöfn Helgadóttir, sem lagði mikla vinnu í málið á grundvelli víðtækrar reynslu sinnar á sviði geðheilbrigðismála. Tillagan er svohljóðandi, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela ríkisstjórninni að koma á fót neyðargeðheilbrigðisteymi og tryggja því fjármögnun. Teymið verði skipað heilbrigðisstarfsfólki með sérþekkingu á sviði geðheilbrigðis, vímuefnavanda og skaðaminnkunar. Teyminu verði falið að sinna útköllum úr neyðarnúmerinu 112 í þeim tilvikum þar sem grunur leikur á að einstaklingur eða einstaklingar á vettvangi stríði við geðrænan vanda eða vímuefnavanda. Þá skuli starfsfólk Neyðarlínunnar, sem og lögregla, fá viðeigandi fræðslu til að meta í störfum sínum hvort þörf sé á aðstoð frá heilbrigðisstarfsfólki í útköllum.“

Forseti. Undanfarið hefur umræða um geðheilbrigðismál orðið umfangsmeiri í samfélaginu. Ákall hefur verið eftir auknu aðgengi að faglegri þjónustu, sérstaklega í alvarlegustu tilvikunum. Mikilvægt er að tryggja öryggi bæði notenda þjónustunnar og lögreglu með sérhæfðari aðstoð fyrir alla aðila. Það er því mikilvægt að efla samstarf milli geðheilbrigðiskerfisins og lögreglu. Almennt er líklegra að lögregla hafi afskipti af einstaklingum með geðrænan vanda eða vímuefnavanda heldur en heilbrigðisstarfsfólk. Þessir einstaklingar eru oft með fjölþættan vanda sem krefst aðkomu sérfróðra aðila.

Virðulegi forseti. Það er þannig að einstaklingar með geðrænan vanda eru ekki ofbeldisfyllri en gengur og gerist í samfélaginu. Þeir eru hins vegar tíu sinnum líklegri til að verða fyrir ofbeldi í samfélaginu. Þrátt fyrir það er lögreglan oftar kölluð út en heilbrigðisstarfsfólk þegar upp koma atvik vegna einstaklinga með geðrænan vanda, oft vegna vanþekkingar almennings á ástandi þeirra. Lögregluna skortir jafnframt í mörgum tilvikum nauðsynlega sérþekkingu til að takast á við einstaklinga sem glíma við alvarlegan geðrænan vanda, svo sem einstaklinga með geðrofseinkenni.

Í öðrum tilvikum getur aðkoma heilbrigðisstarfsfólks einnig verið nauðsynleg þótt ekki sé um eins alvarleg tilvik að ræða. Rannsóknir sýna að með snemmtækri íhlutun heilbrigðisstarfsfólks er hægt að fyrirbyggja frekari afbrot eða skaða sem einstaklingur með geðrænan vanda hefði getað valdið í framhaldi af atvikinu ef hann hefði ekki fengið aðstoð. Eins er mikilvægt að aðgerðir lögreglu og annarra viðbragðsaðila orsaki ekki frekari áföll fyrir einstaklinginn sem á í hlut eða geri jafnvel illt verra.

Víða erlendis hafa sérstök neyðargeðheilbrigðisteymi gefið góða raun, bæði fyrir einstaklinga með geð- eða vímuefnavanda og lögregluna og samfélagið í heild. Tillaga okkar Pírata byggist því á sannreyndum aðferðum. Árið 1978 hóf lögreglan í Bresku-Kólumbíu í Kanada samstarf við hjúkrunarfræðinga í útköllum er vörðuðu geðrænan vanda. Síðan þá hefur samstarf lögreglu og heilbrigðisstarfsfólks verið ein af grunnstoðum útkallsþjónustu í fylkinu.

Frá árinu 1989 hefur verið starfandi svokallað almannaöryggisteymi í Eugene í Oregon-ríki Bandaríkjanna sem gengur undir heitinu CAHOOTS. Þetta eru hástafir þannig að þetta er skammstöfun, virðulegur forseti, og því ekki hægt að þýða þetta yfir á íslensku. Teymið hefur verið fyrirmynd margra annarra sams konar teyma víðs vegar um Bandaríkin, t.d. STAR-verkefnisins í Denver í Colorado-ríki. Þegar teymið fær útkall vegna einstaklings með geðrænan vanda er sendur læknir og heilbrigðisstarfsmaður á geðheilbrigðissviði á vettvang. Verkefnin eru margvísleg, t.d. krísuíhlutun, velferðarathuganir, útköll vegna misnotkunar vímuefna, sjálfsvígshættu og ýmislegs fleira. Ef útkallið varðar ofbeldisfullan einstakling er óskað eftir stuðningi frá lögreglu. Árið 2019 var aðeins kallað eftir lögreglu í 150 skiptum af 24.000.

Talið er að almannaöryggisteymið í Eugene-borg spari skattgreiðendum 8,5 milljónir bandaríkjadala á ári hverju með því að meðhöndla atvik sem annars hefðu endað á borði lögreglu eða inni á sjúkrahúsum að óþörfu. Í Hamilton í Ontario-fylki í Kanada fækkaði handtökum um 70% eftir að sambærilegu aðgerðateymi var komið á laggirnar árið 2013. Verkefnið gaf svo góða raun að síðan þá hefur verið komið á fót slíkum aðgerðateymum í samstarfi við lögreglu í 90% lögregluumdæma Ontario-fylkis.

Í Svíþjóð hefur sérstakur geðheilbrigðissjúkrabíll verið rekinn frá árinu 2015. Bíllinn er mannaður af tveimur hjúkrunarfræðingum og einum sjúkrabílstjóra með sérþekkingu á fyrstu hjálp og krísustjórnun. Verkefninu var komið á fót í kjölfar ákalls um að fólk með geðrænan vanda fengi viðeigandi aðstoð í neyð, sem og frá lögreglu sem upplifði sig hjálparvana þar sem hana skorti þekkingu, þjálfun og tíma til þess að eiga við einstaklinga í þessari stöðu. Ef hætta er á að einstaklingurinn geti verið ofbeldisfullur er einnig kölluð til lögregla en í langflestum tilvikum er íhlutunar hennar ekki þörf. Verkefnið hefur gefið góða raun. Bæði er sjúklingum betur sinnt með faglegri þjónustu en einnig er það léttir fyrir lögregluna að vita að hún geti kallað til sérfróða aðila ef þörf er á.

Bretar hafa undanfarin ár stuðst við hugmyndafræðina „right care, right person“, eða rétt umönnun, rétt manneskja, svo ég þýði þetta yfir á íslensku, með leyfi forseta, sem þróuð var af lögreglunni í Humberside og felst í því að tryggja þeim sem hringja í neyðarlínuna viðeigandi þjónustu frá viðeigandi fagfólki. Lögreglusveitin í Humberside hafði áhyggjur af því að hún gæti ekki veitt þeim sem glíma við geðrænan vanda eða fíknivanda þá sérfræðiaðstoð sem þeir þyrftu á að halda og taldi að kröftum lögreglunnar væri betur varið í hefðbundin lögreglustörf. Því var ákveðið að lögregla myndi í samstarfi við sjúkraflutningamenn, geðheilbrigðisstarfsfólk, bráðasjúkrahús og félagsþjónustu koma á fót neyðarviðbragðsteymi fyrir þennan viðkvæma hóp. RCRP-teymin sinna útköllum sem berast m.a. í gegnum neyðarlínuna og eftirfylgni með skjólstæðingum sínum og draga þannig úr álagi á lögregluna og heilbrigðisstofnanir sem áður hafa þurft að bregðast við slíkum málum.

Virðulegi forseti. Frá því þessi tillaga var síðast lögð fram hafa einnig komið fram mjög jákvæðar umsagnir frá Félagi íslenskra hjúkrunarfræðinga, Félagsráðgjafafélagi Íslands, Öryrkjabandalagi Íslands, fulltrúum Neyðarlínunnar og Hugarafli. Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga bendir réttilega á að geðhjúkrunarfræðingar hafi víðtæka þekkingu og reynslu sem myndi nýtast mjög vel í að leiða eða vinna í geðheilbrigðisteymunum um allt land og við tökum heils hugar undir þá athugasemd. Sömuleiðis benda félagsfræðingar á að menntun þeirra og reynsla sé mikilvægur hlekkur í starfi neyðargeðheilbrigðisteymis. Félögin taka bæði undir mikilvægi þess að þessari þjónustu verði komið á fót og undir þetta taka fulltrúar Neyðarlínunnar, Öryrkjabandalags Íslands og Hugarafls einnig. Umsagnaraðilar ítreka líka mikilvægi þess að tryggja fjármögnun þessa verkefnis og að aðgengi að neyðargeðheilbrigðisteymi verði um allt land, þ.e. fólki verði ekki mismunað gagnvart þeirri þjónustu sem það getur fengið eftir því hvort það lendir í geðrænum vanda hér á höfuðborgarsvæðinu eða á landsbyggðinni. Við tökum heils hugar undir þessar athugasemdir.

Neyðargeðheilbrigðisteymi leysir þó ekki eitt og sér allan vanda, virðulegi forseti. Viðbragðsaðilar verða að búa yfir þekkingu til að meta hvort þörf er á að kalla út geðheilbrigðisteymi eða lögreglu eða bæði. Lögreglan í Vancouver í Bresku-Kólumbíu í Kanada bauð fyrst upp á námskeið til að þjálfa lögreglufólk í að meðhöndla einstaklinga með geðrænan vanda árið 2002. Frá árinu 2018 hefur það verið skylda fyrir lögreglu sem starfar í framlínu. Lögregluumdæmi í Bandaríkjunum hafa nýlega komið á fót verkferlum þar sem lögregla er í ríku samstarfi við heilbrigðisstarfsmenn þegar kemur að útköllum vegna einstaklinga með geðrænan vanda. Heilbrigðisstarfsmenn og sálfræðingar veita lögreglufólki þjálfun í krísuíhlutun svo það geti metið hvort aðstæður krefjist aðkomu heilbrigðisstarfsfólks. Í Miami-Dade-sýslu í Flórída situr lögreglufólk 40 tíma námskeið undir handleiðslu sérfræðinga á geðheilbrigðissviði. Verkefnið hefur gefið góða raun. Tilefnislausum handtökum hefur fækkað og skotárásum einnig af því að lögreglufólk hefur lært aðrar leiðir til að meðhöndla slíkar aðstæður. Þá hefur aðgerðum lögreglu þar sem beita hefur þurft valdi snarfækkað.

Einnig er mikilvægt að starfsfólk Neyðarlínunnar hljóti viðhlítandi þjálfun og fræðslu í að meta hvort kalla skuli til lögreglu eða heilbrigðisstarfsfólk þegar þörf er á útkalli. Frá febrúar 2021 hafa þau sem hringt hafa í neyðarsíma í Austin í Texas-ríki Bandaríkjanna getað valið hvort þau þiggi aðstoð lögreglu, slökkviliðs eða heilbrigðisstarfsfólks. Starfsfólk neyðarsímans hefur hlotið þjálfun til að meta erindi og framsendir það til viðeigandi viðbragðsaðila. Þar að auki hefur allt lögreglufólk í Austin hlotið þjálfun í krísuíhlutun en í þeim tilvikum þar sem grunur leikur á að einstaklingur á vettvangi eigi við alvarlegan geðrænan vanda að stríða sendir starfsfólk neyðarsímans einnig út heilbrigðisstarfsfólk með sérhæfingu á geðheilbrigðissviði.

Virðulegi forseti. Þar sem almannaöryggisteymi eða sambærileg teymi með heilbrigðisstarfsfólki hafa unnið hefur dregið úr aðkomu lögreglu og þar með handtökum og valdbeitingu. Þegar þessir hópar vinna vel saman, bæði á vettvangi og á bak við tjöldin, í krísuíhlutunarþjálfun, hefur það sýnt sig erlendis að fólk með geðsjúkdóma á auðveldara með að fá geðheilbrigðisþjónustu, lögreglan upplifir færri áföll og minni streitu og geðheilbrigðisstarfsmenn hafa tækifæri til að hafa enn meiri áhrif í samfélaginu. Skjólstæðingar teymanna eru líklegri til að fá þá hjálp sem þau þurfa og lögreglufólk upplifir meira öryggi í starfi þar sem það veit betur hvernig á að bregðast við í aðstæðum sem þessum. Fyrstu gögn hafa sýnt að þessi teymi stuðla að heilbrigðari samfélögum sem eru öruggari og fjárhagslega stöðugri. Með öðrum orðum: Allir vinna, virðulegi forseti.

Ég hef nú lokið umfjöllun minni um þetta mikilvæga mál og ég legg til að málið fari til hv. velferðarnefndar að lokinni þessari umræðu og hvet alla hv. alþingismenn til að veita þessu máli liðsinni sitt og greiða því atkvæði.