155. löggjafarþing — 10. fundur,  26. sept. 2024.

atvinnulýðræði.

191. mál
[16:53]
Horfa

Flm. (Eva Dögg Davíðsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir þingsályktunartillögu um atvinnulýðræði, tillögu sem á sér djúpar rætur og hefur verið leidd fram á borð á ýmsum tímum úr þessum stól, fyrst árið 1965. Þessi tillaga hefur lifað í gegnum tímana tvenna vegna þess að kjarninn í henni, rétturinn til lýðræðis á vinnustað, stendur óhaggaður sem eitt helsta baráttumál okkar á vinstri vængnum. Tillagan fjallar um skipun starfshóps og hljóðar svo, með leyfi forseta:

„Alþingi ályktar að fela félags- og vinnumarkaðsráðherra að skipa starfshóp aðila vinnumarkaðarins og hins opinbera sem geri tillögur um hvernig auka megi lýðræði á vinnustöðum. Í starfshópnum eigi sæti fulltrúar Alþýðusambands Íslands, BSRB, Bandalags háskólamanna, Samtaka atvinnulífsins, Samtaka íslenskra sveitarfélaga, forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis og félags- og vinnumarkaðsráðuneytis. Félags- og vinnumarkaðsráðherra skipi formann starfshópsins. Ráðuneyti leggi starfshópnum til aðstöðu og nauðsynlega sérfræðiþjónustu.“

Að tillögunni standa ásamt þeirri sem hér stendur hv. þingmenn Bjarni Jónsson, Jódís Skúladóttir, Orri Páll Jóhannsson og Steinunn Þóra Árnadóttir, allt saman þingmenn Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs.

Atvinnulýðræði er ekki ný hugmynd. Hún hefur fylgt þróun lýðræðis í okkar samfélögum og á síðustu öld fengu margar lýðræðishugsjónir sinn sess í vinnumarkaðsmálum. Við höfum séð í mörgum nágrannalöndum okkar hvernig atvinnulýðræði hefur gefið launafólki raunverulegan rétt til að hafa áhrif á rekstur fyrirtækja, til að taka þátt í ákvarðanatöku og tryggja að hagur þeirra sé varinn. En á sama tíma og þessar hugmyndir hafa náð fótfestu í öðrum löndum hefur raunin hingað til ekki alveg verið sú á þessu landi.

Forseti. Þessi tillaga hefur sjaldan verið jafn mikilvæg og nú. Við stöndum á tímamótum þar sem breytingar á vinnumarkaði, tækninýjungar og sívaxandi áskoranir heimsins krefjast þess að við lítum til lýðræðislegra lausna. Fjórða iðnbyltingin með sjálfvirkni og gervigreind veldur grundvallarbreytingum á vinnumarkaði. Það er því mikilvægt að í þessum breytingum sé rödd starfsfólks í forgrunni, að þau sem skapi verðmætin taki þátt í að móta framtíð sína og sinna fyrirtækja. Við viljum búa í lýðræðisríki þar sem við höfum aðkomu að þeim ákvörðunum sem líf okkar snertir, ýmist með kosningum eða með því að vera þátttakendur í samfélaginu eða samtalinu á einhvern hátt. Raunin er hins vegar sú að langflest okkar verja stórum hluta okkar vökutíma í umhverfi þar sem í besta falli er fáræði og oft algjört einræði. Atvinnurekendur og stjórnendur eiga fyrirtækin og þeirra orð eru lög en rödd vinnandi fólks getur í besta lagi verið ráðgefandi en því miður erum við oft virt að vettugi.

Það er pólitísk ákvörðun að aðskilja efnahagslíf og pólitík og tala um þau eins og verið sé að ræða eðlisólík og aðskilin svið mannlífsins. Það er gömul saga og ný að auður fyrirtækja verður ekki til nema fyrir tilstilli vinnu launafólks og þann mannauð sem í þeim er fólginn. Það er því ekki boðlegt að bjóða upp á umhverfi þar sem vinnandi fólk er meðhöndlað sem lítið annað en verkfæri auðmagnsins og þar sem þörf fólks til að eiga fyrir sínu lifibrauði er nýtt til hins ýtrasta. Það er einmitt í slíku umhverfi sem vinnumansal, sem vissulega hefur verið mikið til umræðu í samfélaginu undanfarið, fær þrifist. Það er vissulega þannig að þó að þessi þingsályktun nái fram að ganga mun það ekki breyta þeim hræðilegu aðstæðum sem fórnarlömb mansals eru í en hún yrði þá liður í að breyta ásjónu og viðhorfi okkar til efnahags- og atvinnulífsins þar sem litið er á verkafólk og annað launafólk sem þátttakendur í verðmætasköpun þessa samfélags. Vinstri græn hafa alltaf staðið fyrir réttindum launafólks og lýðræðislegri þátttöku í samfélaginu. Við trúum því að lýðræðið eigi ekki að vera takmarkað við kosningadaginn eða einungis fyrir pólitískar ákvarðanir. Það á líka að ná inn á vinnustaðina. Þegar ákvarðanir eru teknar um starfskjör, rekstrarstefnu og framtíð starfsfólks þá á það að eiga rödd.

Það er mikilvægt að árétta að þessi tillaga er alls ekki aðför að íslenska vinnumarkaðslíkaninu sem hefur að mörgu leyti staðið sig mjög vel í að tryggja réttindi launafólks. Við eigum sterk verkalýðsfélög og kjarasamninga sem hafa í gegnum áratugina verið burðarás í að bæta kjör og aðstæður vinnandi fólks. Atvinnulýðræði bætir einungis við þau gildi sem íslenska líkanið byggir á með því að tryggja að starfsfólk hafi meiri aðkomu að ákvörðunum innan fyrirtækja sem eykur öryggi og þátttöku þeirra. Markmið tillögunnar er að þróa vinnumarkaðinn enn frekar án þess að grafa undan því góða sem við höfum byggt upp með öflugu samspili verkalýðsfélaga og kjarasamninga.

Virðulegi forseti. Ég vil að lokum hvetja alla hv. þingmenn að kynna sér greinargerðina sem fylgir tillögunni þar sem hún er ítarleg, vönduð og upplýsandi. Ég vil ljúka hér ræðu minni með að ítreka mikilvægi þess sem atvinnulýðræði snýst um, að auka áhrif starfsmanna á vinnustöðum sínum. Þetta er kjarninn í tillögunni og að mínu mati ættum við öll að vinna að því að þróa íslenskan vinnumarkað í þessa átt í takt við þróunina sem hefur átt sér stað í nágrannalöndum undanfarna áratugi. Að umræðu lokinni legg ég til að tillögunni verði vísað til hv. velferðarnefndar.