155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

stjórnarsamstarfið og ástandið í þjóðfélaginu.

[15:06]
Horfa

Kristrún Frostadóttir (Sf):

Forseti. Hagsmunum þjóðarinnar væri best borgið með nýrri ríkisstjórn og nýrri stefnu og nýrri forystu. Þetta hefur þorra landsmanna verið ljóst í langan tíma en samt ákvað hæstv. ríkisstjórn að leggja það á þjóðina að bíða enn einn veturinn áður en fólkið í landinu fær tækifæri til að kjósa sér nýtt upphaf.

Forseti. Landið er stjórnlaust. Lítum bara yfir málefnasviðin hjá hæstv. dómsmálaráðherra. Lögreglan er undirmönnuð og ákæruvaldið vanrækt. Vinnumansal er látið viðgangast af því að lögreglan hefur ekki bolmagn til að rannsaka það. Niðurskurður til saksóknara veldur því að alvarleg brot fyrnast og umfangsmiklar rannsóknir sem varða jafnvel hagsmuni allra neytenda í landinu eru látnar sitja á hakanum og svo mætti lengi áfram telja. Menn sem hafa verið dæmdir fyrir alvarlega glæpi ganga lausir vegna þess að það er ekki pláss fyrir þá í fangelsum landsins. Við heyrum neyðaróp frá Landhelgisgæslunni ár eftir ár og skipulagðir glæpahópar nýta sér flugfélög sem ríkisstjórnin leyfir að komast upp með að afhenda ekki farþegalista fyrir komuna til landsins.

Forseti. Ofan á allt þetta hefur nýr formaður eins af stjórnarflokkunum nú dæmt úr leik breytingar á útlendingalögum og sagt að boðuð frumvörp hæstv. dómsmálaráðherra eigi ekki, með leyfi forseta, „erindi inn í þingið“. Hvers vegna eru þau þá á þingmálaskrá? Þetta er sami ráðherra dómstóla og tók ákvörðun um miðja nótt samkvæmt pöntun frá samstarfsflokki sem hún segist sjálf ekki hafa haft lagalega heimild til að taka. Ég spyr því hæstv. dómsmálaráðherra: Hvenær er komið nóg af þessu? Er hægt að bjóða þjóðinni upp á þetta lengur?