stjórnarsamstarfið og ástandið í þjóðfélaginu.
Forseti. Það liggur alveg fyrir að þó að lögreglu og dómstólum hafi núna verið hlíft við niðurskurði er haldið áfram að höggva í ákæruvaldið. Við sjáum þetta birtast okkur þessa dagana, að það virðist ekki skipta máli. Það er orðinn árlegur fréttaflutningur núna í aðdraganda jóla í tengslum við fjárlög að annaðhvort eru það dómstólarnir, lögreglan, Landhelgisgæslan og þetta árið er það ákæruvaldið. Það má segja að þetta sé kannski óháð því hvaða ríkisstjórn Sjálfstæðisflokkurinn starfar í vegna þess að flokkurinn hefur jú haldið á þessu ráðuneyti, hvað á ég að segja, undanfarna áratugi nær sleitulaust og þetta er staðan sem við sitjum uppi með í fangelsismálunum, dómstólamálunum, þegar kemur að landamæraeftirliti og öðru. En það er ekki furða að fólk velti því fyrir sér hvort landinu sé stjórnað almennilega í ljósi þeirra bolta sem er kastað hér á milli og ég hef ekki enn þá fengið svör við því hvaða ráða hún hyggst grípa til þegar kemur að stórum málaflokki hér þar sem einn af samstarfsráðherrum hennar hefur svo gott sem ákveðið að slaufa afgreiðslu þeirra mála í vetur. Er samstaða um þessi mál í ríkisstjórninni? Hvað hyggst hæstv dómsmálaráðherra gera?