staða öryrkja og frestun gildistöku kjarabótar.
Virðulegi forseti. Ekki ætlar sá sem hér stendur að gera lítið úr því að fólk býr við mismunandi kjör í landinu og ekki efa ég það eina sekúndu að ýmsir gætu búið við betri kjör. Við erum svo sem alltaf að reyna að bæta þau, m.a. höldum við auðvitað áfram um þessi áramót að hækka umtalsvert framfærslu í gegnum þau kerfi sem við höfum og erum til að mynda að hækka lífeyrisgreiðslurnar nokkuð meira en þær tekjur sem við erum að áætla að skattleggja á fólk, um umtalsvert fleiri prósentur. Svo er það auðvitað þannig að við hækkum líka jafnt og þétt þess á milli. Þessi framsetning hv. þingmanns á því að hér hafi verið tekin ákvörðun um frestun er auðvitað fjarstæðukennd. Það frestaðist frá því sem áður hafði verið áætlað. Það er margt, því miður, í kerfi ríkisins sem frestast frá því að menn leggja fyrstu drög að því. Ákvörðun var hins vegar tekin um að klára þetta frumvarp síðastliðið vor, um verulegar bætur til öryrkja, sem ég man ekki betur en að hv. þingmaður og hennar flokkur hafi staðið gegn, sem kemur svo hérna upp og kallar eftir því að þetta frumvarp fari að virka einn, tveir og þrír. Hvað samhengi er í þessum hlutum, hv. þingmaður? Hvernig getur maður verið á móti annars vegar verulegum kjarabótum sem sannarlega fylgja þessari breytingu og komið svo og kallað eftir þeim strax? Það var hins vegar tekin ákvörðun um að undirbúa þetta vel, allar reglugerðir og undirbúning, þannig að þegar kerfið tæki gildi 1. september á næsta ári væri allt undirbúið, sem er veruleg kjarabót til öryrkja, hækkun á ársgrundvelli um 18 milljarða.