155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

staða öryrkja og frestun gildistöku kjarabótar.

[15:19]
Horfa

Inga Sæland (Flf):

Frú forseti. Mikið var þetta dapurt innlegg og þvílíkt froðusnakk. Flokkur fólksins er stoltur á rauða takkanum gegn því almannatryggingafrumvarpi sem hér var lagt fram. Við erum ekki á móti kjarabótum til öryrkja. Við vorum á móti starfsgetumatinu og þeim handagangi í öskjunni sem í rauninni lýtur að því. Það að geta ekki svarað mér því hvort það sé eðlilegt að láta öryrkja greiða fyrir kjarapakka ríkisstjórnarinnar, sem glögglega er berum orðum nefnt í fjármálaáætlun 2025–2029, að ganga svona fram, berja í borðið og þykjast vera að snúa einhverju upp í andhverfu sína — við göngum alltaf beina línu í Flokki fólksins. Við erum ekki að hnika frá okkar stefnu að einu eða neinu leyti, við berjumst fyrir bættum hag. Við berjumst fyrir þau sem hafa það bágast í samfélaginu og við viljum sækja fjármuni þangað sem þeir eru fyrir á meðan hæstv. fjármálaráðherra kallar það húmbúkk og svarar í rauninni engu til um það hvernig hann getur réttlætt það að taka 10,1 milljarð frá þessu fátæku fólki, fátækasta fólkinu í landinu, og færa það yfir í kjarapakka ríkisstjórnarinnar.