155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

staða öryrkja og frestun gildistöku kjarabótar.

[15:20]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F):

Virðulegur forseti. Það skiptir engu máli þótt hv. þingmaður komi hér upp og tali sífellt hærra og endurtaki sömu vitleysuna aftur og aftur, hún verður ekki réttari. Það er búið að skýra ferlið, hvernig það gerist. (Gripið fram í.) Þessi kjarabreyting og þessi verulega umbreyting á umhverfi öryrkja verður undirbúin, frágengin og tekur gildi 1. september. Froðusnakkið, hv. þingmaður, hvort er það að koma hér upp og krefjast réttinda, (IngS: Svaraðu …) aukinna kjara (Gripið fram í.) á grundvelli breytinga og á grundvelli frumvarps sem hv. þingmaður var algerlega á móti — hvað er froðusnakk? (IngS: Geturðu ekki svarað?) Svo get ég auk þess upplýst hv. þingmann um að barnagjaldið í sundlauginni í Þelamörk er 300 kr. en ekki 1.200 kr. (Gripið fram í.) Hvað er froðusnakk, hv. þingmaður?