rannsókn á ólöglegu samráði skipafélaganna.
Virðulegi forseti. Við heyrum fréttir af því að embætti héraðssaksóknara hafi ekki mannskap til að rannsaka meint ólöglegt samráð skipafélaganna Eimskips og Samskipa. Á sama tíma er mögulegt að þessi meintu brot fyrnist. Við sjáum það í fréttum að héraðssaksóknari hefur sagt upp sex starfsmönnum vegna niðurskurðarkröfu stjórnvalda. Gott og vel. Viðreisn er, ekki spurning, flokkur sem vill ráðdeild í ríkisrekstri en við setjum spurningar við þá forgangsröðun þegar á að draga tennurnar úr sjálfu réttarríkinu sem sinnir auðvitað gríðarlega mikilvægu eftirlits- og öryggishlutverki í samfélagi okkar. Auðvitað er fyrsta hlutverk, grunnhlutverk ríkisins að tryggja öryggi fólks. Ákæruvald sem getur síðan ekki hreyft sig byggir ekki undir öryggi í samfélaginu. Við sjáum það og heyrum að héraðssaksóknari hefur m.a. sagt að embættið hafi einfaldlega ekki mannafla í að vinna þetta mál samhliða öðrum stórum málum. Við vitum líka að héraðssaksóknari er með mörg þung og stór mál hjá sér en þetta meinta samkeppnisbrotamál er risastórt og það er auðvitað grafalvarlegt, sem grefur undan almenningi. Það er árás á neytendur. Það er árás á m.a. önnur fyrirtæki sem byggja tilvist sína á því að það sé raunverulega virk samkeppni. Þetta er mál sem hækkar vöruverð og þjónustu líka til venjulegs fólks. VR, Neytendasamtökin og Félag atvinnurekenda báðu um skýrslu sem í segir að það sé um 62 milljarða samfélagslegur kostnaður sem hlýst af slíkum brotum. Ég vil minna á í þessu samhengi, og veitir ekki af þegar þessi ríkisstjórn er annars vegar: Almannahagsmunir framar sérhagsmunum. Þess vegna vil ég segja að það getur ekki verið að skilaboð stjórnvalda til almennings séu þau að svona samráð sé bara í himnalagi.
Þess vegna er mín spurning einfaldlega sú til hæstv. ráðherra: Hvernig má það vera að þessi staða sé komin upp?