rannsókn á ólöglegu samráði skipafélaganna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Nú er það svo með ákæruvaldið í landinu að hér er ekki verið að draga tennurnar úr því. Þvert á móti höfum við lagt áherslu á að standa vörð um ákæruvaldið og í því sambandi get ég nefnt að það er undanþegið aðhaldskröfu. En það er samt sem áður ljóst sem hv. þingmaður nefnir hér, að við höfum séð og við höfum fengið veður af því, og hv. þingmaður nefnir verslunina í landinu, að það virðist vera nokkuð mikið um afbrot í verslunum. Við höfum átt góð samtöl við Samtök verslunar og þjónustu um hvernig við getum sameiginlega farið í það verkefni að koma í veg fyrir og minnka það tap sem verður og þá rýrnun sem verður í verslunum hér á landi vegna þess, eins og hv. þingmaður nefnir réttilega, að það bitnar fyrst og síðast á neytandanum sjálfum. Það hefur verið farið í ýmsar aðgerðir á vegum dómsmálaráðuneytisins til að styrkja ákæruvaldið til þess að við getum tekist á við þau mál sem upp koma, eins og t.d. í sambandi við skipulagða glæpastarfsemi sem og önnur, og ég mun leggja áherslu á það að standa vörð um ákæruvaldið hér eftir sem hingað til.