155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

rannsókn á ólöglegu samráði skipafélaganna.

[15:27]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég get bara ekki orða bundist. Hvaða endemis þvæla er þetta? Hér er verið að standa vörð um ákæruvaldið í landinu. (Gripið fram í.) Ég stend hér fyrir hönd Sjálfstæðisflokksins og stýri dómsmálaráðuneytinu og það ætlar enginn annar en ég að taka hart á glæpum í landinu og við ætlum að standa vörð um réttarríkið. Það erum við að gera. Að koma hér og tala um að ég og minn flokkur séum nánast að framkvæma samkeppnisbrot — þetta er bara þvæla. Við erum að styrkja samkeppniseftirlit í landinu, við stöndum vörð um samkeppni á sama tíma og við viljum að hún sé frjáls. Ég veit að hv. þingmaður er sammála mér í þeirri skoðun að hér viljum við búa í frjálsu samfélagi þar sem jöfn samkeppni ríkir á milli aðila og reglur eru á markaði sem allir þurfa að beygja sig undir og fara eftir.