framlagning stjórnarmála og ummæli vararíkissaksóknara.
Frú forseti. Ég ætlaði að spyrja hæstv. ráðherra út í sömu hluti og hv. þm. Kristrún Frostadóttir spurði hér áðan en það kemur ekki að sök. Það er bara betra af því að hæstv. ráðherra svaraði ekki spurningunum í fyrri tilraun en nú gefst annað tækifæri til þess. Ég skal reyna að afmarka þetta með því að spyrja einfaldlega: Hvernig hyggst hæstv. ráðherra bregðast við því að nýr formaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs er búinn að slá út af borðinu mál frá dómsmálaráðherra? Þau verða ekki afgreidd. Mun hæstv. ráðherra bara láta segja sér það og draga málin til baka, hætta við að leggja þau fram? Verða þau lögð fram svona til málamynda, látin bara deyja í þinginu, eða mun hæstv. dómsmálaráðherra leggja þessi mál fram eftir sem áður og reiða sig á stuðning utan ríkisstjórnarinnar til að koma þeim í gegn?
Einnig ítreka ég gamla spurningu til hæstv. ráðherra er varðar ummæli Helga Magnúsar Gunnarssonar vararíkissaksóknara, sem hæstv. ráðherra sagði að hefðu verið óviðeigandi og ekki átt við mann í hans stöðu og þau hafi grafið undan trúverðugleika ákæruvaldsins. En hvaða ummæli voru þetta? Því það hefur aldrei komið fram hjá ráðherranum til hvaða ummæla er verið að vísa.