155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

framlagning stjórnarmála og ummæli vararíkissaksóknara.

[15:33]
Horfa

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson (M):

Frú forseti. Enn fáum við ekki að vita hvaða ummæli þetta voru sem kölluðu á þessar skammir og athugasemdir. Við verðum þá bara að geta okkur til um það, af því að ég á ekki gott með að átta mig á því af lestri þessa viðtals sem vísað var í hvað hefði orðið til þess að ráðherrann brást við með þessum hætti og hugsaði sig um í sex vikur hvort víkja ætti manninum úr starfi.

En hvað um það. Góðu fréttirnar eru þær að hæstv. ráðherra ætlar að leggja fram útlendingamálin sín og veitir ekkert af því reyndar og hefði þurft miklu meira til og vonandi koma þau þá bara sem fyrst. En í ljósi þess að ráðherrann reiðir sig ekki lengur á stuðning þingmanna Vinstri grænna við þessi mál heldur sér væntanlega fyrir sér að ná þeim í gegn með stuðningi utan stjórnar, og ég held að það sé alveg eðlilegt að álykta sem svo að það gangi, væri þá ekki bara betra að bæta í og koma með alvöruátak í útlendingamálum, helst bara ný útlendingalög, fyrst það þarf hvort eð er ekki að spá í hvað VG vill lengur?