155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

framlagning stjórnarmála og ummæli vararíkissaksóknara.

[15:34]
Horfa

dómsmálaráðherra (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S):

Virðulegi forseti. Ég þakka aftur fyrir fyrirspurnina. Það er áhugavert að hér þráspyr hv. þingmaður mig spurninga og ég verð eiginlega að undrast að hann hafi ekki kynnt sér þetta áður því að þau svör sem hann er hér að krefja mig um hafa fyrir löngu komið fram og eru opinber. Í niðurstöðu málsins kom fram hvers lags ummæli þetta voru og af hverju þau voru óviðeigandi. Ég get sagt að þau beindust m.a. að innflytjendum, að flóttafólki, tilteknum samtökum og einstaklingi sem starfar sem lögmaður. Þá var þarna um ítrekaða háttsemi sem ræða. Þetta hefur allt komið fram og mig undrar að hv. þingmaður hafi ekki kynnt sér málið betur áður en hann kemur hér með fyrirspurn. Þetta eru allt saman opinberar upplýsingar.