stefna ríkisstjórnarinnar vegna hörmunganna í Palestínu.
Forseti. Ég vil byrja á að óska hæstv. ráðherra til hamingju með formennskuna, einstaklega klár og góður stjórnmálamaður þar á ferð þannig að það gleður mig. Ég er samt með ákveðin ónot í maganum gagnvart ýmsu hérna sem er í gangi. Fyrirspurnirnar sem hafa komið hér á undan fjalla um gríðarlega alvarleg mál eins og stöðuna í heilbrigðismálum, sem Píratar voru að kynna sér í kjördæmavikunni og það sló mig dálítið mikið. Staðan í menntamálum er erfið og í löggæslumálum, eins og hefur verið farið yfir hérna, og annað. En það sem ég vildi aðeins koma inn á við hæstv. ráðherra er það sem kom fram í máli flokksins sem hún fer nú fyrir, að það sé búið að vera í gangi þjóðarmorð í heilt ár. Þá held ég að við verðum að spyrja okkur, þegar einn af stjórnarflokkunum lýsir því yfir, hvaða áhrif það hefur á stefnu ríkisstjórnarinnar í praxís þegar allt kemur til alls. Gerist eitthvað eða eru þetta bara orð? Við erum hérna með ákveðið meirihlutaræði á þingi þar sem það er í rauninni ríkisstjórnin sem ræður því hvaða mál koma á dagskrá. Ég velti því fyrir mér miðað við stærð þessa máls — við erum að tala um þjóðarmorð. Það er ekkert smáræði. Þetta er stærsti glæpur sem við upplifum í samfélögum okkar, morð, og hérna er verið að tala um þjóðarmorð. Ef VG og formaður Vinstri grænna kemur málinu ekki í gegnum ríkisstjórnina, fær Alþingi að láta sína rödd heyrast í þessu máli með því að greiða atkvæði um tillögu um þjóðarmorð?