155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

staða samgöngumála á Vestfjörðum.

[15:45]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Það er sannarlega rétt sem kemur fram í máli hv. þingmanns að það er áhyggjuefni að framkvæmdir, bæði við Dynjandisheiði og í Gufudalssveit, hafa tekið lengri tíma en til stóð. Sums staðar hefur þetta ekki beinlínis með fjármögnun að gera, eins og í Gufudalssveit, heldur frekar með jarðvegsaðstæður og slíkar tæknilegar hindranir. Ég vil leggja áherslu á það, og fjallaði raunar um það sérstaklega þegar ég kom á fund fjárlaganefndar í dag, að ég hef áhyggjur af því að við erum ekki að verðbæta framkvæmdaliðinn í samgönguframkvæmdum og höfum ekki verið að gera það frá efnahagshruni. Við ættum að gera það og að mínu mati eigum við að gera betur. Við sjáum að innviðaskuldin í raun stækkar alltaf eftir því sem tímanum vindur fram. Það er mikilvægt, sem hv. þingmaður veit auðvitað, að það fari saman áformin í samgönguáætlun og ég legg áherslu á að ný og uppfærð samgönguáætlun rími við áformin í fjárlagagerðinni. Mér finnst það skipta mjög miklu máli. En mér finnst áhugaverð hugmyndin eða pælingin sem hv. þingmaður leggur fram um sáttmála í svipuðum dúr og undir svipuðum formerkjum og við höfum verið að gera á höfuðborgarsvæðinu, um uppbyggingu samgönguinnviða á forsendum umhverfissjónarmiða og auðvitað byggðauppbyggingar. Hvort það væri hægt að nálgast samgönguinnviðina á Vestfjörðum með svipuðum hætti finnst mér vel skoðunar virði.