155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

staða samgöngumála á Vestfjörðum.

[15:47]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. innviðaráðherra fyrir svarið. Innviðaskuld ríkisins við Vestfirðinga er mjög há og hana verður að greiða. Það er ekki svo að það sé eitthvað annað sem hindrar það að Gufudalssveitin sé að tefjast um þrjú ár frá því sem áður hafði verið lofað. Sveitarstjórnarfólk á Vestfjörðum upplýsti okkur þingmenn um það í liðinni kjördæmaviku að þar hefði í allt sumar verið að því er virtist ein vinnuvél að dóla sér með einhvern farm. Það var ekki full starfsemi í gangi. Útboðum hefur verið frestað, þeim hefur verið skipt upp. Á Dynjandisheiði er 7 km kafli eftir sem á að klára eftir þrjú ár. En ég fagna því að hæstv. innviðaráðherra telur þörf á að gera sambærilegt samkomulag við landshluta eins og Vestfirði. Ríkiseignir geta verið margs konar. Verðmæti geta falist í því að ráðstafa fjárheimildum sem koma úr fiskeldi til að mynda, nú eða tilteknu hlutfalli veiðigjalda sem falla til á Vestfjörðum til næstu 16 ára. Ég fagna því ef hæstv. innviðaráðherra er til í það verkefni og sér þörfina á því. Það er brýnt að klára það sem var lofað.