155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

staða samgöngumála á Vestfjörðum.

[15:48]
Horfa

innviðaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég er mjög vel meðvituð um það ástand í Gufudalssveit sem hv. þingmaður nefnir hér og á þar leið um alloft. Mig langar að segja að það er algjörlega skoðunar virði að tengja með betri og skýrari hætti samgönguáætlun á hverjum tíma og stöðu byggða. Það sem er kannski sérstaklega mikilvægt að horfa til eru samgöngur innan svæða. Ég hef verið í samskiptum við Vestfjarðastofu um áhyggjur af þessum málum, þ.e. að Vestfirðir verði fyrir ósanngjarnari niðurstöðu vegna þess að það er verið að beita viðmiðum sem henta Vestfjörðum verr heldur en öðrum landshlutum. Þannig að mér finnst það koma mjög vel til skoðunar. Svo er náttúrlega bæði vetrarþjónustan (Forseti hringir.) og viðhaldsliðurinn eitthvað sem þarf að horfa þarna sérstaklega til og ég hef lagt áherslu á að það verði gert í mínu ráðuneyti. (Forseti hringir.) Það er auðvitað, eins og hv. þingmaður nefnir, mikilvægt að halda dampi fyrir þennan fjórðung.