sjúkratryggingar.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. heilbrigðisráðherra fyrir frumvarpið og jú, þetta er mjög gott skref í rétta átt. Það eru tvær spurningar sem mig langar að leggja fyrir hann, fyrst um að festa það í lög að fólk geti farið erlendis ef það er búið að bíða of lengi hérna heima. Ég set spurningamerki við það vegna þess að ég veit um einstakling sem er núna í þeirri aðstöðu að vera fullvinnufær og hefur beðið um og það er vitað að hann þarf að fara í liðskiptaaðgerð, en læknirinn dregur það. Hann er búinn að vera frá vinnu í meira en mánuð og fær ekki að fara á biðlista vegna þess að auðvitað byrjar ekki að tikka inn fyrr en þú ert kominn á biðlistann og þá þremur mánuðum eftir það getur hann farið erlendis.
Ég spyr: Er ekki þannig forgangur í kerfinu að þeir sem eru á — er tíminn ekki tvær mínútur, fékk ég bara eina?
(Forseti (OH): Það eru fjórir þingmenn í andsvari.)
Þá spyr ég bara að þessu núna og vonandi fæ ég svar við því.