155. löggjafarþing — 11. fundur,  7. okt. 2024.

sjúkratryggingar.

260. mál
[16:01]
Horfa

heilbrigðisráðherra (Willum Þór Þórsson) (F):

Hæstv. forseti. Ég vil þakka hv. þm. Guðmundi Inga Kristinssyni fyrir þessa spurningu sem einhvern veginn blasir við manni þegar horft er á þessa breytingu þar sem við erum að fara úr sex mánuðum í almennum rétti í þrjá mánuði. Þetta er ólíkt á Norðurlöndunum sem við berum okkur saman við og þekkist ekki en þar er þetta skatttengt; til þess að öðlast réttindi þarftu að afla þér tekna á öðrum Norðurlöndum. Hér erum við bara með opinbert sjúkratryggingakerfi. Hér erum við að grípa fyrr og það er eðlilegt að spyrja: Af hverju ekki þá og þegar? Það er auðvitað þannig að þeir sem þurfa bráðnauðsynlega þjónustu fá hana, en það þarf líka að meta í tengslum við þann rétt sem liggur fyrir erlendis frá og þá gerist það í gegnum greiðslur á milli landa. En við erum alla vega að stíga hér mjög mikilvægt skref og þetta er mikilvæg réttarbót í því að taka á móti fólki hingað til lands.