sjúkratryggingar.
Forseti. Það er tvennt sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um og byrjum á kerfiskergjunni sem er dálítið í kerfinu. Þegar maður er að spyrja hina ýmsu meðferðaraðila hér og þar í heilbrigðiskerfinu þá rekst maður oft á þann vegg að það þarf að fylla út eitthvert form, einhverjar kröfur sem Sjúkratryggingar gera. Til að mynda í millifærslu þess sem er fyrsta stigs þjónusta í geðheilbrigðismálum yfir á annað stigið koma ýmsar kröfur, t.d. frá Sjúkratryggingum, sem er oft erfitt að uppfylla og kannski eiga ekki við í tilteknum tilvikum sem þurfa að fara á annað velferðarstigi en kerfið er ósveigjanlegt af því að þarna koma beinharðari peningar einhvern veginn inn í. Mig langar að velta því fyrir mér með hæstv. ráðherra hvernig sé í rauninni hægt að vera sveigjanlegri í þessari þjónustu, því að hún er mjög mikilvæg.